Aldís Ásta snýr heim í KA/Þór

Aldís Ásta snýr heim í KA/Þór

Handboltakonan Aldís Ásta Heimisdóttur hefur gengið til liðs við KA/Þór og snýr því aftur heim til Akureyrar. Hún hefur verið lykilmaður hjá liði Skara HF í Svíþjóð undanfarin ár þar sem hún varð bæði Svíþjóðarmeistari og deildarmeistari.

Aldís sem er 26 ára gömul hóf ferilinn með KA/Þór ung að aldri og lék alls 170 keppnisleiki með liðinu á tímabilinu 2014 til 2022 þegar hún gekk til liðs við Skara í Svíþjóð.

Aldís á einnig að baki farsælan feril á Íslandi en hún fór fyrir liði KA/Þór sem varð Íslands-, Bikar- og Deildarmeistari auk þess að verða Meistari Meistaranna. Aldís skoraði meðal annars sigurmarkið í báðum úrslitaleikjum KA/Þórs gegn Val í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn.

„Aldís á von á sínu fyrsta barni í vor en hún er staðráðin í að koma sterk til baka á völlinn og ljóst að það verður gríðarlega sterkt að fá hana aftur heim. Við bjóðum Aldísi hjartanlega velkomna aftur í KA/Þór og hlökkum svo sannarlega til að sjá hana aftur í svarta búningnum,“ segir í tilkynningu á vef KA þar sem má lesa meira um Aldísi og félagsskiptin.

COMMENTS