„Aldrei of seint að læra“

Mayflor Perez Cajes stundar nám á listnáms- og hönnunarbraut Verkmenntaskólans á Akureyri og stefnir á að útskrifast sem stúdent næsta vor. Mayflor er 43 ára gömul og býr í Grímsey. Á heimasíðu VMA má finna viðtal við Mayflor um námið, listsköpun og lífið á Akureyri og í Grímsey.
Mayflor er fædd á Filipseyjum en hún kom til Íslands þegar hún var átta ára gömul og bjó í tæpan áratug með fjölskyldu sinni í Ólafsvík. Síðan lá leiðin norður og alla leið út í Grímsey.
Listnám hóf Mayflor á myndlistarnámskeiði hjá Guðmundi Ármanni og Billu í SÍMEY og í framhaldinu tóku nokkur þeirra sem sóttu námskeiðið sig saman og opnuðu vinnustofu þar sem þau lögðu rækt við listsköpun sína. Síðar hélt Mayflor áfram myndlistarnámi í kvöldskóla listnáms- og hönnunarbrautar og að honum loknum lá leiðin í dagskóla til þess að ljúka fullgildu námi af brautinni til stúdentsprófs. Áður hafði hún lært tækniteiknun í Iðnskólanum í Hafnarfirði og naglafræði á námskeiði á Akureyri.
„Það er aldrei of seint að læra.Það sem heillar mig í listsköpuninni er að geta tjáð mig án þess að setja mig í ramma. Ég nýt þess að vinna með náttúruna og flest mín verkefni tengjast Grímsey enda vil ég vekja sem mest athyli á eynni. Þegar ég horfi til baka sá ég aldrei fyrir mér að fara í listnám en ég er mjög ánægð með að hafa ákveðið að fara í það, það hefur hjálpað mér mikið og það mun styrkja mig í verkefni mínu Grímsey Design, sem ég mun halda áfram með og þróa,“ segir Mayflor á vef VMA.
Tengdar greinar
Uppfært: 10. nóvember 2026










