Akureyrarbær hefur auglýst aftur eftir kauptilboði í byggingarrétt 18 einbýlishúsalóða í Móahverfi á vef bæjarins.
„Við skipulag svæðisins var lögð áhersla á að leggja grunninn að nýju og vönduðu íbúðahverfi með fjölbreyttum íbúðagerðum og grænum svæðum sem verður aðlaðandi til búsetu. Áhersla er á góðar tengingar gangandi og hjólandi innan hverfis, við aðliggjandi hverfi og útivistarsvæði. Í hverfinu í heild er gert ráð fyrir á bilinu 960-1.100 íbúðum og er þegar búið að úthluta fjölbýlis-, rað-, par- og einbýlishúsalóðum fyrir um 450 íbúðir,“ segir á vef bæjarins.
Yfirlitsmynd af auglýstum lóðum
Tilboðum í byggingarrétt lóða skal skila rafrænt í gegnum útboðsvef Akureyrarbæjar fyrir kl. 12 fimmtudaginn 2. október 2025.
Hér má nálgast leiðbeiningar um hvernig skila megi inn rafrænu tilboði/umsókn.


COMMENTS