Bækur og aftur bækur

Rithöfundurinn Sandra B. Clausen hefur ekki setið auðum höndum á árinu. Hún hefur þegar gefið út ljóðabók og skáldsögu á árinu og stefnir á að gefa út barnabókina Litla ljóta jólatréð í nóvember.
Fyrsta prentverk Söndru á árinu kom út í byrjun júlí. Það var skáldsagan Galdra Imba sem er fyrsta bókin í bókaseríu Söndru, Blóðbönd. Þar er sögusviðið 17. öldin á Íslandi og bókin fjallar um hina rammgöldróttu Imbu og afkomendur hennar. Sandra stofnaði sína eigin útgáfu til að gefa út bókina sem kilju.
„Bókin kom út í bæði hljóð- og rafformi á vegum Storytel, Storyside original í fyrra, en nú hef ég stofnað mína eigin útgáfu þar sem ég gef þær einnig út sem kiljur. Nafnavalið á útgáfunni er ekki úr lausu lofti gripið en hún heitir Dröfn, í höfuðið á móður minni sem lést úr veikindum árið 2018, þá aðeins 54 ára að aldri,“ segir Sandra.
„Prentunin er svansvottuð og þar styð ég bæði við innlent atvinnulíf og vel mér framleiðslu þar sem lögð er sérstök áhersla á ábyrga umgengni við landið okkar.“
„Blóðbandar-serían er mér afar kær þar sem sagan stendur mér ekki einungis nálægt fyrir það eitt að eiga sér stað á Íslandi heldur komst ég að því þegar ég fór fyrst af stað með skrifin að Ingibjörg Jónsdóttir, sjálf Galdra Imba, er mín formóðir í beinan föðurlegg. Vegna aukinna vinsælda skrifaði ég á dögunum undir samning um fjórar aðrar bækur sem ég er nú þegar komin með drögin að. Þær verða þá allavega sex talsins í þeirri seríu en Galdra Þura kemur út sem hljóð- og rafbók um miðjan nóvembermánuð hjá Storytel og í kilju gegnum útgáfuna Dröfn. Ég mun kynna seríuna betur á bókamessu í Hörpu seinna í þeim mánuði.“

Sandra gaf einnig út ljóðabókina Ljóðstafi á árinu. Ljóðstafir er hennar önnur ljóðabók sem geymir úrval ljóða sem hún hefur samið á 10 ára tímabili. Þá gaf hún út bókina Undir Gullregninu með Telmu frænku sinni í september.
„Ljóðstafir spinnur saman hefðbundna ljóðstafi sem mér lærðust er ég sat fundi í Kvæðafélagi Iðunnar og nútímalegri kveðskap. Einnig gaf ég út smásöguna Undir Gullregninu en sú hugmynd kviknaði í tengslum við gamlan draum Telmu, frænku minnar sem er þroskaskert. Hennar æðsti draumur hefur verið að gefa út bók og sá varð að veruleika í september er við gáfum hana út saman, eftir hennar hugmyndum, skrifaða af mér og má flokka þá bók sem notalegan sveitarómans, alveg í anda Telmu,“ segir Sandra.

Sandra ætlar svo ekki að láta sig vanta í jólabókaflóðið í ár og stefnir á útgáfu af sinni fyrstu barnabók í nóvember.
„Litla ljóta jólatréð, gefin út af Bókaútgáfunni Dröfn. Bók sem ég hef borið í maganum í um tólf ár og verður loks að veruleika. Sagan er hjartnæm og fjallar um lítið grenitré sem ung stúlka plantar í lund. Í fyrstu er tréð afar hamingjusamt en gleðin dvínar þegar hin trén í kring fara að gera lítið úr því vegna smæðar þess. Sagan er beitt en falleg ádeila á útlitsdýrkun og þann samfélagslega þrýsting sem fólk upplifir varðandi hlutverk sín í lífinu. Á sama tíma þjónar hún sem dýrmæt og hlý áminning um að hinn sanni jólaandi felst ekki í ytra útliti, heldur í því að sýna náunganum kærleika, hlýju og umhyggju. Ég fer þar einnig út úr mínum þægindarramma þar sem ég sjálf myndskreyti bæði kápu og myndir í bókinni.“

Sandra er nú þegar byrjuð að skrifa og skipuleggja bókaútgáfur næsta árs. Þriðja og síðasta bókin í bókaseríu hennar Klúbbaserían mun koma út á næsta ári á vegum Sögur útgáfu.
„Bókin ber heitið Sæluhúsin og margir sem bíða spenntir eftir frekari ævintýrum Karenar sem á það til að flækja líf sitt. Bækurnar eru léttar samtímasögur, svokallaðar kósíkiljur, en einnig ádeila á okkar nútímasamfélag. Í þeim bókum er fókusinn á hversdaginn og þær flækjur sem honum kunna að fylgja, þar sem ástin og óvænt leyndarmál koma upp á yfirborðið í leit að hamingjunni. Sumir vilja kalla bækurnar erótískar og vissulega er undirtónninn slíkur þar sem Kúbburinn er ekki einhver saumaklúbbur.“
„Það má segja að höfundur skrifi oft út frá sjálfum sér og því má segja að ég eigi dálítið í henni Karen og hún í mér. Ég sjálf, líkt og aðalpersóna Klúbbabókanna, hef verið í miklu uppgjöri gagnvart sjálfri mér, endurhæfingu þetta árið og nýtt tímann í að spegla mig í eldri handritum sem komið hafa upp úr skúffunum í leiðinni. Því nýtti ég tímann í að gefa út gömul handrit sem setið hafa á hillunni en eru nú komin í hillur Pennabúða landsins,“ segir Sandra.
Þá mun hún gefa út framhald af Galdra Imbu, önnur bók í Blóðbandaseríunni, sem fjallar um dóttir Imbu, Galdra Þuru.
„Galdra Þura er dóttir Imbu og ekki síður göldrótt. Í þeirri bók fléttast inn ástir og örlög Íslendinga á árum áður, galdrar, leyndardómar, erótík og spenna.“
Tengdar greinar
Uppfært: 20. október 2026










