Bakstur Örnu Maríu hefur skilað 1,3 milljónum til NorðurHjálpar

Arna María Sigurbjargardóttir hefur frá áramótum fært NorðurHjálp á Akureyri heimabökuð brauð og heimagerðar sultur, sem seldar eru í verslun samtakanna til styrktar starfseminni.
Salan á vörunum hefur það sem af er ári skilað um 1,3 milljónum króna sem renna til hjálparstarfs NorðurHjálpar. Auk þess að skapa tekjur hefur framtakið aukið fjölbreytni í vöruúrvali verslunarinnar sem laðar að viðskiptavini.
Að baki vörunum liggja margar vinnustundir og sinnir Arna María bakstrinum og sultugerðinni á heimili sínu.
„Bakstur minn og sultugerð fyrir NorðurHjálp er mitt framlag til að styrkja mikilvægt hjálparstarf í samfélaginu,“ segir Arna María. Áhug i hennar og kunnáttu nýtir hún til þess að styðja við bakið á þeim sem þurfa aðstoð.
„Það besta sem ég veit er að gefa af mér. Það veitir mér ómælda gleði að geta nýtt áhuga minn og kunnáttu til að láta gott af mér leiða og hjálpa þeim sem þurfa á stuðningi að halda. Fyrir mér er það dýrmætara en nokkuð annað.“

Tengdar greinar
Uppfært: 29. október 2026










