Bestu pylsurnar á Akureyri

Matarbloggarinn Albert Eiríksson segir að bestu pylsur landsins séu í Pylsuvagninum á Akureyri á bloggi sínu Alberteldar.is. Albert segir úrvalið í Pylsuvagninum í göngugötunni sé með því fjölbreyttasta sem hann hafi séð í þessari tegund götubita sem sumir vilja kalla þjóðarrétt Íslandinga.
„Bestu pylsurnar á Akureyri – klassískar, djarfar og líka til veganpylsur. Meðal þess vinsælasta á matseðlinum er sjálfur „Akureyringurinn“ með öllu — þessi með rauðkálinu — pylsa með gráðaosti og svo nýjasta uppáhaldið mitt: Eldfjallapylsan. Einnig er hægt að fá pylsur með kartöflusalati, beikoni, kokteilsósu og bökuðum baunum, auk þess sem úrvalið af veganpylsum er sérlega gott og vel útfært,“ skrifar Albert.
Hjónin Þorgeir Sólveigarson og Helena Halldórsdóttir reka Pylsuvagninn. Þau segja í samtali við Albert að pylsa í brauði sé líklega vinsælasti götubiti á Íslandi, klassísk samsetning með remúlaði, tómatsósu, sinnepi og lauk.
„En í Pylsuvagninn fær þessi þjóðarréttur nýjan og skemmtilegan blæ. Látið koma ykkur á óvart næst þegar þið eigið leið um göngugötuna á Akureyri,“ skrifar Albert.
Tengdar greinar
Uppfært: 23. september 2026










