Bíladagamyndbandið
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Eins og allir Norðlendingar vita voru Bíladagar haldnir á Akureyri dagana 17.-20. júní. Þeir Árni og Hreiðar hjá Gonzo Creations voru viðstaddir og tóku upp stemminguna yfir dagana. Strákarnir segja að þeir hafi sett gríðarlegan tíma og vinnu í að að gera myndbandið; allt frá frá undirbúningi, upptökum og klippingu. Afraksturinn má sjá hér fyrir neðan.
„Bíladagar hafa alltaf verið stór partur af lífi okkar. Þetta er tíminn þegar fjölskyldur og vinir hittast og deila þessu magnaða áhugamáli hvort með öðru. Við viljum minna á að Bíladagar eru fjölskylduhátíð og við skulum sleppa því að eltast við það neikvæða í öllu,“ segja Árni og Hreiðar.
Hlekkur á myndbandið:
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










