MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Biggi Maus opnar nýja heimasíðu

Eftir Ingólfur Stefánsson·
401836075306a569d88dbac4
kaffid.is

Birgir Örn Steinarsson, betur þekktur sem Biggi Maus, hefur opnað nýja heimasíðu á www.biggimaus.is.

Á síðunni er að finna yfirlit yfir fjölbreyttan tónlistarferil Birgis, allt frá árunum með Maus til sólóferilsins og annarra verkefna á borð við Krónu og The Bigital Orchestra.

Sérstaklega umfangsmikið er myndbandasafn síðunnar, sem spannar meira en þrjá áratugi. Þar má finna tónlistarmyndbönd, upptökur af tónleikum, sjaldséð efni og ýmislegt annað úr sögu tónlistarmannsins.

Á vefnum er því hægt að eyða góðum tíma í að gramsa og uppgötva.

Vefurinn verður einnig vettvangur fyrir skrif Birgis. Þar hyggst hann birta pistla um lífið, listina, samfélagið og hvaðeina sem honum liggur á hjarta. Fyrsti pistillinn, Hvað ég hef lært í skóla lífsins?, er þegar aðgengilegur. Hann birtist upphaflega í prentuðu blaði Heimildarinnar í ágúst síðastliðnum undir yfirskriftinni Veröldin hrundi og það var það besta sem hefur komið fyrir mig.

Gestum gefst jafnframt kostur á að senda Birgi spurningar sem hann getur svarað á síðunni.

Með vefnum vill Birgir skapa sjálfstæðan vettvang fyrir tónlist sína, skrif og önnur verkefni, þar sem áhugasamir geta bæði kynnt sér ferilinn og fylgst með því sem fram undan er.

Heimasíðan: www.biggimaus.is

Tengdar greinar

Uppfært: 16. nóvember 2026