Knattspyrnumaðurinn Bjarni Aðalsteinsson mun yfirgefa KA og spila með liði í dönsku C-deildinni á komandi sumri. Hann dvaldi í Danmörku síðasta vetur með kærustu sinni, sem er þar við nám, og hefur ákveðið að vera þar að minnsta kosti næsta árið. Hann mun því ekki spila með KA liðinu næsta sumar. Þetta kemur fram á vef KA í dag.
Hjörvar Maronsson, formaður knattspyrnudeildar KA, segir að ákvörðunin hafi verið tekin í góðu samkomulagi við félagið. Hann lofar Bjarna fyrir frábæran tíma hjá KA, allt frá yngri flokkum og upp í meistaraflokk.
„Bjarni hefur átti stóran þátt í góðum árangri liðsins undanfarin ár. Á þessum tíma var Bjarni lykilleikmaður í baráttu liðsins hér heima fyrir sem og í Evrópukeppnum og er handhafi bikarmeistaratitilsins 2024. Við óskum honum góðs gengis í næstu skrefum erlendis en dyr KA standa Bjarna ætíð opnar aftur,“ segir í tilkynningu KA.


COMMENTS