Bjartar horfur fyrir millilandaflug um Akureyri

Bjartar horfur fyrir millilandaflug um Akureyri

Í Sunnudagsviðtali Húsavík.com ræddi Örlygur Hnefill við Njál Trausta Friðbertsson, þingmann Norðausturkjördæmis, um baráttuna fyrir uppbyggingu á Akureyri, stöðu Húsavíkurflugvallar og framtíðarsýn hans í flugmálum fyrir landið allt.

Njáll segir það meðal annars von sína að flugstarfsemin á Akureyrarflugvelli haldi áfram að þróast með jákvæðum hætti eins og hún verið að gera síðustu árin.

„Millilandaflugið hefur verið að eflast með jákvæðum hætti á undanförnum árum og umsvifin vaxið með hverju ári. Ég hef fulla trú að sú þróun haldi áfram  og boðið verði upp á heilsársflug innan fárra ára, og vikulegum flugum fjölgi. Það er einnig mín von að flugrekstraraðilum fjölgi.  Flugið með easyJet síðustu ár hefur gengið framar vonum. Heimafólk verið duglegt að nýta sér flugið. Það eru auðvitað mikilvæg lífsgæði fólgin í því að geta flogið beint frá Akureyrarflugvelli til útlanda, mikil lífsgæði. Ég hef mikla trú á að flugið um flugvöllinn muni eflast mikið, sérstaklega millilandaflugið.“

Njáll segir að nýtt flughlað á Akureyrarflugvelli, sem tekið var formlega í notkun fyrir rúmum tveimur árum, hafi sannað mikilvægi sitt í síðustu viku þegar átta flugvélar frá Icelandair neyddust til að lenda á Akureyrarflugvelli vegna óveðurs í Keflavík. „Á gamla flughlaðinu er hægt að koma fyrir fjórum til fimm farþegaþotum en með nýja flughlaðinu er hægt að taka við 12–14 vélum þannig að hér er um mikla bót að ræða.“

Ítarlegt viðtal við Njál um flugvallarmál og meira má lesa á Húsavík.com með því að smella hér.

COMMENTS