Böðvar ráðinn sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs

Böðvar Þórir Kristjánsson hefur verið ráðinn sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar í dag þar sem segir að Böðvar hafi víðtæka starfsreynslu af stjórnun, rekstri og þeim málaflokkum sem heyra undir sviðið.
Böðvar er fæddur 2. mars 1971. Hann er menntaður byggingarfræðingur frá VIA University College og er auk þess húsasmíðameistari og með réttindi sem byggingarstjóri.
Undanfarin tvö ár hefur hann starfað sem verkefnastjóri hjá Húsheild Hyrnu, en áður var hann eigandi og framkvæmdastjóri byggingafyrirtækisins Lækjarsels í rúman áratug. Þar áður starfaði hann m.a. sem verkefnastjóri hjá SS-byggir ehf. og við byggingareftirlit hjá Opus verkfræðistofu.
Tengdar greinar
Uppfært: 29. október 2026










