Bólusett gegn inflúensu eftir miðjan október

Bólusett gegn inflúensu eftir miðjan október

Áformað er að hefja bólusetningar gegn inflúensu á heilsugæslustöðvum Heilbrigðisstofnun Norðurlands eftir miðjan október. Bóluefni er ekki komið til landsins og því ekki hægt að bjóða upp á bólusetningar fyrir þann tíma.

Þegar bólusetningar hefjast eftir miðjan október verður hægt að bóka tíma í bólusetningu á Mínum síðum á Heilsuveru eða með því að hringja í sína heilsugæslustöð. Nánari upplýsingar á vef HSN.

COMMENTS