Dagskrá 112 dagsins á Glerártorgi

Dagskrá 112 dagsins á Glerártorgi

Sunnudaginn 15. febrúar næstkomandi gefst öllum tækifæri til að kynna sér störf og skoða búnað viðbragðsaðila á Akureyri og nágrennis á Glerártorgi milli kl. 12:00 og 15:00. Dagskráin er hér fyrir neðan og kandífloss verður á staðnum fyrir börnin:


Kl. 12:00 Þyrla Landhelgisgæslunnar lendir á bílastæðinu fyrir framan Nettó og verður með gest um borð.
Kl. 12:00 Björnis brunabangsi mætir á svæðið – ath. upphafleg tímasetning var kl. 13:00
Kl. 14:00 Rauði Kross Íslands veitir skyndihjálparmanneskjum ársins verðlaun.
Kl. 14:00 Veitt verða verðlaun í eldvarnargetraun Landssambands slökkviliðs og sjúkraflutningamanna.

Meðfylgjandi eru myndir frá viðburðinum í fyrra.

COMMENTS