Stúdentafélag Háskólans á Akureyri heldur fjölskyldubingó

Stúdentafélag Háskólans á Akureyri stendur fyrir fjölskyldubingói miðvikudaginn 18.nóvember næstkomandi. Viðburðurinn er opinn almenningi og eru allir hjartanlega velkomnir. Gestir eru hvattir til að taka með sér börnin, foreldra, afa og ömmur eða vinahópinn, þetta er tilvalið tækifæri til að eiga notalega og skemmtilega stund saman.
Með viðburðinum vill Stúdentafélagið skapa skemmtilega samverustund í góðum félagsskap þar sem fólk getur komið saman, tekið þátt í bingói og átt ánægjulegan seinnipart.
Fjölskyldubingó Stúdentafélagsins hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og hefur mæting verið góð. Bingóið hefur fest sig í sessi sem skemmtileg samverustund þar sem fólk kemur saman, á góða stund og freistar þess að næla sér í glæsilega vinninga.
Með góðri reynslu frá fyrri árum er mikil tilhlökkun fyrir komandi bingói og hlakkar Stúdentafélag Háskólans á Akureyri til að taka á móti gestum og vonast til að sjá sem flesta!
Húsið opnar klukkan 16:30 og hefst bingóið klukkan 17:00 í Hátíðarsal skólans. Bingóspjaldið kostar 1.500 krónur og það verða glæsilegir vinningar í boði fyrir heppna þátttakendur.
Tengdar greinar
Uppfært: 12. nóvember 2026










