Diego Montiel gengur í raðir KA

Diego Montiel gengur í raðir KA

Knattspyrnumaðurinn Diego Montiel hefur skrifað undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild KA á Akureyri. Diego er 30 ára gamall miðjumaður sem gengur til liðs við KA frá Vestra.

Diego kemur frá Svíþjóð en hann gekk í raðir Vestra fyrir nýliðið tímabil. Hann var lykilmaður hjá liðinu sem vann Bikarmeistaratitilinn og lék með í öllum leikjum liðsins í sumar. Áður en hann gekk til liðs við Vestra spilaði Diego með Varberg í Svíþjóð.

Þar áður spilaði hann með Vendsyssel og Velje í Danmörku, Beerschot í Belgíu, og sænsku liðunum Örgryte, Gefle, Sirius, Dalkurd, Västerås og Brommapojkarna. Þar að auki á Montiel leiki með sænska U17 ára landsliðinu og þar á meðal vináttulandsleik gegn Íslandi árið 2014.

„Það eru ákaflega jákvæðar fréttir að fá Montiel í okkar raðir enda hefur hann sýnt gæði sín í Bestudeildinni og ætlumst við til mikils af honum. Bjóðum hann hjartanlega velkominn norður og hlökkum til að sjá hann í gula og bláa búningnum,“ segir í tilkynningu á vef KA.

COMMENTS