Eik fasteignafélag veitir styrk til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis

Eik fasteignafélag veitir styrk til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis

Eik fasteignafélag hefur veitt Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágranna styrk að upphæð 341 þúsund krónum. Greint er frá á vef Glerártorgs en Eik fasteignafélag er eigandi Glerártorgs.

Styrkurinn er tileinkaður framlagi þátttöku gesta sem tóku þátt í gjafaleik á Dekurkvöldi Glerártorgs þann 9. október 2025. Eik fasteignafélag styrkti  félagið um 1.000 kr. fyrir hvern þátttakanda sem tók þátt í leiknum, en alls tóku 341 gestir þátt. Styrkurinn fer í Dekurdagasöfnunina sem rennur óskipt til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis. Í byrjun október styrkti einnig Glerártorg Krabbameinsfélagið með kaupum á slaufum í staur að upphæð 100.000 krónur. 

Fyrir hönd Eikar Fasteignafélags afhentu Kristín Anna Kristjánsdóttir og Elva Ýr Kristjánsdóttir, fulltrúum Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis styrkinn.

COMMENTS