Fagráð Sjúkrahússins á Akureyri, SAk, hefur sent frá sér ályktun um brotthvarf Hildigunnar Svavarsdóttur, fyrrum forstjóra SAk. Fagráð harmar hið skyndilega brotthvarf Hildigunnar úr starfi forstjóra og álítur að farsælast hefði verið að hún hefði setið áfram.
„Starfsemi Sjúkrahússins hefur verið að ganga í gegnum viðkvæmt tímabil af örsökum t.d. vegna kröfu ráðuneytis að segja upp ferliverkum lækna, myglu í húsnæði og aðstöðu margra deilda sem krefjast flutninga flókins búnaðar og starfsemi ásamt mikilli úrbótavinnu, áskorana tengdum nýjum kjarasamningum lækna, mönnunarvanda lækna, hjúkrunarfræðinga og fleiri heilbrigðisstétta og skorts á fjármögnum í takt við verkefni. Eðlilegra hefði verið að halda stöðugleika í yfirstjórn við þessar aðstæður. Fagráð SAk þakkar Hildigunni fyrir vel unnin störf og samstarf á undanförnum árum,“ segir í ályktuninni.
Hildigunnur óskaði eftir því að láta af störfum þann 16. febrúar síðastliðinn í kjölfar þess að heilbrigðisráðherra auglýsti stöðu hennar til umsóknar að loknum fimm ára skipunartíma Hildigunnar.
Heilbrigðisráðuneytið hefur auglýst embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri laust til umsóknar. Skipað verður í stöðuna til 5 ára frá 1. júní 2026. Umsóknarfrestur er til 23. mars næstkomandi.


COMMENTS