MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Flammeus gefur út plötuna Pain <3

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
6addef683a383-1
kaffid.is

Akureyrski tónlistarmaðurinn Flammeus sendir frá sér sína þriðju breiðskífu Pain <3 þann 12. nóvember 2026. Á henni fléttar hann saman melódískar lagasmíðar, djassaða fágun og spiritúalíska sjálfsskoðun í úrvali lifandi hljóðversupptaka.

Platan sækir innblástur í hrátt og mannlegt andrúmsloft fyrstu Bítlaupptakanna. Hún fangar spennuna, ófullkomleikann og þá tónlistarlegu einingu sem skapast við lifandi flutning — eiginleika sem geta glatast þegar upptökur eru slípaðar til og dauðhreinsaðar. Verkin sameina aðgengilegar melódíur, djarfar hljómsetningar og tilraunir með takt, en fjalla jafnframt um ólíkar hliðar ástar, missis og persónuþroska.

Titillinn Pain <3 vísar til kjarnahugmyndar plötunnar: Sársauki er ekki aðeins andstæða hamingju heldur órjúfanlegur hluti mannlegrar reynslu — og kannski tilfinning sem við getum lært að vera þakklát fyrir.

Titillagið um ást í fjörbrotum

Titillagið Pain fjallar um samband í fjörbrotum og hvernig ástin getur orðið að botnlausum sársauka. Lagið dvelur þó ekki við sjálfsvorkunn heldur kafar dýpra og leitar sátta við sársaukann. Textinn fjallar um hvernig væntingar geta flekkað ástina og hvernig gleði og þjáning eru óhjákvæmilegur hluti lífsins.

Tónlistarlega sameinar Pain melódískan aðgengileika og djassskotna hljómfræðilega dýpt. Platan hefst á þéttu tríói með greinilegum Bítlaáhrifum, hljóðrituðu í einni töku við lifandi flutning. Lagið snýr svo aftur í lok plötunnar í tveimur stærri útgáfum sem sýna ólíkar hliðar þess — frá léttara poppi yfir í tilraunakenndari og frjálslegri djassópuss. Með útgáfunni rætist langþráður draumur Flammeusar um að fanga orkuna og spennuna sem myndast þegar hljómsveitin spilar saman, án þess að fórna smáatriðunum sem gera hvern flutning einstakan. Platan er unnin af þrautæfðri hljómsveit og endurspeglar þróun Flammeusar bæði sem tónsmið og flytjanda. Þar mætast einlægni sjálfstæða lagahöfundarins og frjálsræði djassspunans.

Frá Akureyri til Þýskalands

Flammeus er listrænt hliðarsjálf akureyrska tónlistarmannsins Tuma Hrannar Pálmasonar. Tumi er söngvari og tónsmiður og leikur á ýmis hljóðfæri. Verk hans eru leitandi og spiritúalísk í eðli sínu og einkennast af grípandi laglínum og flóknari, djössuðum uppbrotum. Í lagagerð sinni leitast hann við að finna hið fullkomna jafnvægi milli aðgengilegra, melódískra lína og hljómfræðilegrar dýptar.

Flammeus hefur áður gefið út plöturnar The Yellow árið 2019 og ASAP (As Sane As Possible) árið 2024. Hann hefur hlotið verðlaun sem bassaleikari og söngvari, og tók þátt í The Voice Iceland aðeins 18 ára gamall. Síðan hefur hann haldið áfram að hasla sér völl sem lagasmiður og tónlistarmaður.

Tumi býr nú í Þýskalandi og stundar meistaranám í djassbassaleik. Í verkum sínum sameinar hann frjálsræði sjálfstætt starfandi tónlistarmanns og öguð vinnubrögð djassakademíunnar. Tónlist hans býður hlustendum að hægja á ferðinni, líta inn á við og jarðtengjast.

Pain <3 kemur út á streymisveitum 12. nóvember 2026 frá Bulb Mind Records. Tumi Hrannar Pálmason sá um upptökustjórn, Helgi Freyr Tómasson um hljóðblöndun og Sigfús Jónsson um lokavinnslu í Hljómbræður Stúdíó. Hafsteinn Már Sigríðarson Khan sá um grafíska hönnun og Bernódus Óli Einarsson um ljósmyndun.

Tengdar greinar

Uppfært: 29. október 2026