Flugeldarusl og jólatré verða ekki tekin við lóðamörk

Flugeldarusl og jólatré verða ekki tekin við lóðamörk

Í byrjun janúar verður gámum fyrir jóletré komið fyrir við verslanir Bónus í Naustahverfi og Langholti. Gámar fyrir flugeldarusl verða við sömu verslanir en einnig við grenndarstöðina norðan við Ráðhús Akureyrarbæjar. Þetta kemur fram í tilkynningu Akureyrarbæjar þar sem íbúar bæjarins eru eindregið hvattir til að nota þessa gáma.

„Um jól og áramót fellur yfirleitt til mikið af alls kyns úrgangi og rusli. Lifandi jólatrjám sem lokið hafa hlutverki sínu er mikilvægt að koma í endurvinnslu sem og flugeldarusli sem er engan veginn við hæfi að skilja eftir á víðavangi. Hjálpumst að við að hreinsa til eftir hátíðarnar og koma ruslinu rétta leið,“ segir í tilkynningu bæjarins.

Ítrekað er að flugeldarusl og jólatré verði ekki tekin við lóðamörk.

COMMENTS