Í gær barst lögreglunni á Norðurlandi vestra tilkynning vegna einshreyfils flugvélar sem hlekktist og lenti utan flugbrautar á Blönduósflugvelli.
Um borð í vélinni voru flugmaður og þrír farþegar sem voru fluttir til skoðunar á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi. Meiðsl þeirra eru ekki talin alvarleg.
Rannsóknardeild lögreglustjórans á Norðurlandi vestra ásamt rannsóknarnefnd samgönguslysa fara með rannsókn málsins.


COMMENTS