Flying Tiger Copenhagen mun opna endurbætta og endurhannaða verslun næstkomandi laugardag á Glerártorgi á Akureyri. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Glerártorgs þar sem segir að verslunin hafi fengið nýtt og ferskt útlit í takt við alþjóðlega stefnu fyrirtækisins.
„Markar þessi opnun tímamót í verslunarupplifun viðskiptavina. Flying Tiger Copenhagen hefur í nærri aldarfjórðung fært Íslendingum skandinavíska hönnun og frábærar vörur á viðráðanlegu verði. Flying Tiger Copenhagen hefur lengi verið hluti af daglegu lífi fjölskyldna, námsmanna og allra sem elska litríka og skapandi hluti. Nú tekur verslunin á móti gestum með fersku útliti og skýrari framsetningu,“ segir á vef Glerártorgs.
Fyrstu 200 viðskiptavinirnir á laugardaginn fá gjafapoka að verðmæti að minnsta kosti 6.000 kr. Lukkuhjól verður á staðnum með vinningum og boðið verður upp á popp og andlitsmálun.
Einnig geta nokkrir heppnir viðskiptavinir unnið þátttöku í hinu sívinsæla „Store Run“, þar sem viðkomandi fær 60 sekúndur til að hlaupa um búðina og grípa það sem hugurinn girnist – og fær að eiga það allt. Flying Tiger Copenhagen mun svo gefa andvirði þess sem næst í „Store Run“ Styrktarfélagi Krabbameinssjúkra Barna, en fyrirtækið er einn af aðalstyrktaraðilum SKB á Íslandi.
„Við viljum að hver heimsókn sé innblástur – sama hvort þú ert að leita að hagnýtu, fallegu eða einhverju skemmtilegu. Þetta nýja útlit á versluninni hjálpar okkur að bjóða upp á upplifun sem fær fólk til að brosa,“ segir Arnar Þór Óskarsson, framkvæmdastjóri.
Opnunarhátíðin fer fram í verslun Flying Tiger Copenhagen á Glerártorgi á Akureyri, laugardaginn 19. júlí og stendur frá kl. 10:00 til 17:00.


COMMENTS