Fortíðin verður í forgrunni sem aldrei fyrr sex fimmtudaga í febrúar og mars. Minjasafnið á Akureyri, Akureyrarakademían og Sagnfræðingafélag Íslands standa að viðburðaröð um sagnfræði þar sem boðið verður upp á fjölbreytta fyrirlestra um ljósmyndir, lykt, sjúkdóma, persónur og átök svo nokkuð sé nefnt.
Dr. Guðni Th. Jóhannesson, prófessor við Háskóla Íslands, heldur opnunarfyrirlesturinn 5. febrúar. Hvað gerðist á togarabryggjunni 14. maí 1973 þar sem Othello lá við bryggju? Hvaða lærdóm má draga af því og öðrum þáttum í þorskastríðssögu Íslendinga?
Fyrirlestrarnir eru haldnir á Minjasafninu á Akureyri fimmtudagana 5.,12. og 19. febrúar og mars kl. 17 og er aðgangur ókeypis. Fylgist með á samfélagsmiðlum eða heimasíðum samstarfsaðila fyrirlestranna.
Dagskrá:
Febrúar
5. febrúar
Othello-slagurinn á Akureyri og aðrar þorskastríðssögur sem læra má af ef vilji er fyrir hendi.
Dr. Guðni Th. Jóhannesson
12. febrúar
Akureyrarveikin og ME-sjúkdómurinn –
Óskar Þór Halldórsson og dr. Friðbjörn Sigurðsson
19. febrúar
Spegill þjóðar -fréttamyndir í 50 ár og sagan á bakvið þær.
Gunnar V. Andrésson og Sigmundur Ernir Rúnarsson
Mars
5. mars
Ilmur, angan og fnykur: Ýmis lykt í íslenskum heimildum frá 19. og 20. Öld.
Ragnhildur Björt Björnsdóttir, sagnfræðingur
12. mars
Strá fyrir straumi. Ævi Sigríðar Pálsdóttur (1809–1871) og brotakenndar heimildir.
Dr. Erla Hulda Halldórsdóttir
19. mars
Skreytingar í handritum síðari alda og þáttur af einum norðlenskum listaskrifara.
Kjartan Ísleifsson, sagnfræðingur


COMMENTS