„Frábært hvað það er góð blanda af verklegu og bóklegu námi“

„Frábært hvað það er góð blanda af verklegu og bóklegu námi“

Íris Björg Valdimarsdóttir, stúdent í Háskólanum á Akureyri, er næsti viðmælandi í samstarfi Kaffið.is og Háskólans á Akureyri þar sem við fáum að kynnast mannlífinu í skólanum.

Í hvaða námi ert þú?
Ég er að læra hjúkrunarfræði.

Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór?
Í minningunni ætlaði ég allavega alls ekki að verða hjúkrunarfræðingur. En svo um daginn fannst gamalt heimaverkefni þar sem nákvæmlega þessi spurning kom upp. Þar svaraði ég: „Þegar ég verð stór ætla ég að verða hjúkrunarfræðingur, eiga tvö börn, giftast pabba þeirra, kaupa hús og eiga hund.“
Núna á ég bara eftir að klára námið og fá mér hund, þá er þetta allt samkvæmt planinu sem sex ára Íris bjó til. Ég er mjög ánægð með það, þar sem mér finnst námið áhugavert og frábært hvað það er góð blanda af verklegu og bóklegu námi. Einnig finnst mér hjúkrunarfræðin opna svo margar ólíkar og spennandi dyr að námi loknu.

„Mér finnst námið áhugavert og frábært hvað það er góð blanda af verklegu og bóklegu námi

Skemmtilegasta minning þín úr HA?
Ég get ekki valið einhverja eina en öll sprellmótin og árshátíðirnar koma strax upp í hugann. Svo finnst mér alltaf gaman að mæta í lotu, hitta alla og læra eitthvað verklegt.

Hvernig finnst þér háskólalífið á Akureyri?
Það er líflegt, fjölbreytt og skemmtilegt. Eitt af því besta við að stunda nám á Akureyri er hvað háskólasamfélagið er passlega stórt, að mínu mati. Maður kynnist ekki bara nemendum í sínu námi heldur einnig nemendum á öðrum sviðum.
Ég er í staðnámi og hef verið svo heppin að kynnast frábæru fólki og það er svo hvetjandi að mæta upp í skóla að læra og hitta vini sína í leiðinni. Ég, sem ung tveggja barna móðir, get allavega mælt heilshugar með því að stunda nám við Háskólann á Akureyri, þar sem mér finnst allir hafa tekið vel á móti mér og sýnt skilning ef þess hefur þurft, bæði kennarar og nemendur.

Hvar finnst þér best að læra?
Ég vil ekki ljóstra upp besta staðnum því þá verður hann kannski aldrei laus. En annars finnst mér fínt að læra á bókasafninu eða bara heima hjá mér í kósý.

Hvað er það besta við að vera HA-ingur?
Það er svo margt. Félagslífið er frábært, kennararnir eru skilningsríkir og hjálpsamir, en fyrst og fremst er það sveigjanlega námið. Það gerir sem flestum kleift að stunda nám, sama hvar á landinu eða í heiminum maður er staðsettur.
Þetta hentar líka vel fyrir nemendur eins og mig sem eiga börn, því stundum hefur maður ekki tök á því að mæta upp í skóla eða hlusta á fyrirlestra í rauntíma. Þá er svo gott að geta hlustað á upptöku seinna, þegar það hentar betur. En fyrir öll sem hafa tök á því mæli ég hiklaust með því að vera í staðnámi og mæta upp í skóla. Mér finnst það gera upplifunina af háskóla miklu skemmtilegri og maður kynnist fleiri nemendum, sem er svo dýrmætt. Ég vil allavega njóta þess að vera í háskólanámi því það er ekki á planinu hjá mér að fá mér margar háskólagráður. Það geri ég með því að vera opin fyrir því að taka þátt í háskólalífinu og gera allskonar skemmtilegt með samnemendum inn á milli þess sem ég sinni krefjandi námi og ver tíma með fjölskyldunni minni.

COMMENTS