Framboðslisti Samfylkingarinnar í Akureyri fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar var samþykktur samhljóða á félagsfundi í hádeginu í dag í húsakynnum félagsins. Nýr oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri er Sindri S. Kristjánsson, skrifstofustjóri, sem setið hefur sem varabæjarfulltrúi á kjörtímabilinu sem senn er á enda.
Hilda Jana Gísladóttir, sem var oddviti flokksins í síðustu kosningum og bæjarfulltrúi framboðsins á líðandi kjörtímabili, sat í uppstillingarnefnd sem lagði fram tillögu að lista. Á fundinum voru Hildu þökkuð afar vel unnin störf sl. átta ár í bæjarstjórn Akureyrar.
„Það er mér ofboðslegur heiður að hljóta traust félaga minna í Samfylkingunni á Akureyri til að leiða lista framboðsins í bæjarstjórnarkosningunum í vor. Listinn er ótrúlega öflugur, bæði fjölbreyttur en traustur í senn. Með þessum lista sendum við skýr skilaboð til bæjarbúa. Við ætlum að setja menntamál og velferðarmál rækilega á oddinn ásamt að ungum Akureyringum er treyst til ábyrgðar og verka. Verkefnið framundan er stórt en það er jafnframt spennandi og skemmtilegt. Jafnaðarfólk á Akureyri er mætt til leiks,“ segir Sindri S. Kristjánsson, nýr oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri.
Listinn í heild sinni:
- Sindri S. Kristjánsson, skrifstofustjóri og varabæjarfulltrúi
- Hanna Dóra Markúsdóttir, grunnskólakennari
- Sigrún Steinarsdóttir, stofnandi Matargjafir Akureyri og nágrenni
- Jóhannes Már Pétursson, háskólanemi
- Zane Brikovska, starfsmaður á Bjargey meðferðarheimili
- Baldur Sverrisson, framhaldsskólakennari
- Elsa María Guðmundsdóttir, sjónlistakennari
- Elvar Björn Ólafsson, nemi
- Kristín Helga Schiöth, alþjóðafræðingur og blómakona
- Jóhann Jónsson, innkaupastjóri
- Aðalheiður Anna Ragnarsdóttir, nemi og íshokkíkona
- Kristinn Berg Gunnarsson, framhaldsskólakennari
- Heiðrún Hafdal Björgvinsdóttir, háskólanemi
- Hallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Saga Travel
- Anna Sigga Jökuls Ragnheiðard., sálfræðingur
- Unnar Jónsson, forstöðumaður
- Kristín Sóley Björnsdóttir, viðburðastjóri
- Eiður Stefánsson, formaður Félags verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri
- Sigríður Huld Jónsdóttir, verkefnastjóri og hjúkrunarfræðingur
- Þorsteinn Þorsteinsson, fuglaskoðunarmaður
- Guðrún Gunnarsdóttir, eldri borgari
- Ragnar Sverrisson, kaupmaður



COMMENTS