Framboðslisti VG samþykktur á Akureyri

Framboðslisti VG samþykktur á Akureyri

Í dag, sunnudaginn 15. mars, var framboðslisti Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á Akureyri til sveitarstjórnar samþykktur á félagsfundi.

„Listinn er skipaður mjög öflugu fólki sem er tilbúið til að vinna að hugsjónum okkar og gera bæinn betri,“ segir Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir sem leiðir listann en Jana hefur setið í bæjarstjórn Akureyrar í fjögur ár fyrir hönd VG. Jana segist mjög spennt fyrir kosningunum sem framundan eru og afar ánægð með að vinstra fólk í sveitarfélaginu sameinist undir merki VG.

Fólkið á listanum er góð blanda af reynsluboltum og fólki sem er að stíga sín fyrstu skref í stjórnmálum og verður mikill fengur fyrir sveitarfélagið okkar að fá svo öflugt hugsjónafólk til starfa í bæjarstjórn og nefndarstarfi.

Listinn er sem hér segir:

  1. Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, bæjarfulltrúi 
  2. Stefán Oddur Hrafnsson, meistaranemi í kennslufræðum 
  3. Ásrún Ýr Gestsdóttir, athafnakona
  4. Sigtryggur Ellertsson, vistvænn verslunareigandi 
  5. Herdís Júlía Júlíusdóttir, iðjuþjálfi
  6. Erlendur Steinar Friðriksson, sjávarútvegsfræðingur
  7. Sif Jóhannesar Ástudóttir, þjóðfræðingur
  8. Jóhannes Árnason, framhaldsskólakennari 
  9. Harpa Guðbrandsdóttir, verkakona 
  10. Elvar Freyr Fossdal Sigfússon, nemi og lagerstarfsmaður
  11. Anna Sigríður Jónsdóttir, félagsráðgjafi
  12. Mikael Snær Gíslason, líftækninemi
  13. Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir, verkefnastjóri á Amtsbókasafninu á Akureyri
  14. Davíð Örvar Hansson, teymisstjóri hjá Náttúruverndarstofnun
  15. Inga Elísabet Vésteinsdóttir, landfræðingur
  16. Bragi Guðmundsson, fyrrverandi prófessor
  17. Arnfríður Kjartansdóttir, sálfræðingur
  18. Angantýr Ómar Ásgeirsson, kennaranemi
  19. Dýrleif Skjóldal, leikskólakennari og sundþjálfari
  20. Guðmundur Ármann Sigurjónsson, myndlistamaður og -kennari
  21. Hannes Sigurðsson, lagerstarfsmaður
  22. Kristín Sigfúsdóttir, f.v. framhaldsskólakennari og bæjarfulltrúi

COMMENTS