Framkvæmdum lokið á Bjargi – Myndir

Framkvæmdum lokið á Bjargi – Myndir

Líkamsræktarstöðin Bjarg við Bugðusíðu 1 á Akureyri hefur opnað nýja aðstöðu eftir framkvæmdir sem hafa staðið yfir frá því í mars 2025. Nýir búningsklefar hafa verið teknir í gagnið ásamt nýjum inngangi, afgreiðslu og heitum pottum.

„Við byrjuðum í framkvæmdum 17. mars á síðasta ári eftir að við misstum búningaaðstöðuna sem við leigðum af nágrönnum okkar í Sjálfsbjörg endurhæfingastöð. Nú er komin ný aðstaða og fyrirtækin alveg aðskilin. Framkvæmdirnar gengu heilt yfir vel og kúnnarnir okkar voru mjög samvinnuþýðir gegnum allt ferlið,“ segir Páll Hólm Sigurðarson, framkvæmdastjóri líkamsræktarstöðvarinnar.

Ný tæki og endurbætt útisvæði

Tækjasalur líkamsræktarstöðvarinnar hefur einnig verið uppfærður og ný heilsulind sett upp á útisvæði stöðvarinnar.

„Útisvæðið hjá okkur fékk mikla upplyftingu, en þar er að finna tvo 10 manna heita potta, kaldan pott, sánu og útisturtu. Það voru flestir sammála um að gömlu klefarnir okkar væru orðnir nokkuð sjúskaðir en ég er nokkuð sannfærður um að það hafi tekist vel til að uppfæra þá. Við steyptum upp 80 fermetra nýbyggingu til að koma þeim fyrir,“ segir Páll.

Hann segir að útisvæðið hafi ávallt verið vel sótt á Bjargi og því hafi verið mikilvægt að nýta tækifærið og uppfæra þar.

„Þetta svæði er gríðarlega vel sótt hjá okkur og er klárlega orðin hluti af æfingarútínu hjá mörgum. Einnig er þetta hluti af félagslega part heilsuræktar, þegar hópar sem eru á námskeiðum eða opnum tímum og fara saman í pottinn eftir góða æfingu.“

Heitu tímarnir gríðarlega vinsælir

„Síðasta sumar stækkuðum við heita salinn okkar þar sem áður komust 20 manns komast núna 30. Í heita salnum eru Infrared plötur hengdar í loftið, hitinn minnkar vöðvaspennu, bólgur og verki og hjálpar því til við að ná dýpri hreyfingu í vöðvana og framkvæma hreyfingar betur. Einnig lækkar infrarauði hitinn blóðþrýsting , styrkir hjartavöðvann, eykur blóðflæðið og örvar æðakerfið. Í salnum bjóðum við bæði upp á lokuð námskeið og opna tíma þar sem er unnið með handlóð, bjöllur, bolta, teygjur og sína eigin líkamsþyngd,“ segir Páll að lokum.

COMMENTS