Um helgina rennur út frestur til að senda inn framboð og tilnefningar á lista Vinstri grænna á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. Strax í kjölfarið hefst vinna uppstillingarnefndar við að fara yfir þau nöfn sem borist hafa, með það að markmiði að stilla upp fjölbreyttum og sterkum framboðslista fólks sem vill berjast fyrir bættu samfélagi á vinstri- og grænum forsendum.
Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, núverandi bæjarfulltrúi hreyfingarinnar, hefur lýst því yfir að hún gefi kost á sér í oddvitasætið en formaður uppstillingarnefndar gefur ekki upp hvort fleiri framboð hafa borist um að leiða listann. „Listinn verður lagður fyrir félagsfund um miðjan mars en þangað til verða frambjóðendur sjálfir að ákveða hvort þau vilja gera það opinbert eftir hvaða sæti hver sækist,“ segir Sóley Björk Stefánsdóttir formaður nefndarinnar.
Tekið verður við framboðum og ábendingum fram til miðnættis á sunnudag á netfangið vinstriak@gmail.com.


COMMENTS