MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Fyrrum bassaleikari Wham! spilar í Hofi

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Screenshot-2026-11-13-at-11.42.01
Dave West og söngvarinn Steve Mitchell sem kemur fram í hlutverki goðsagnarinnar George Michael.· kaffid.is

Dave West fyrrum bassaleikari Wham! kemur fram á tónleikunum Celebrating George Michael sem fara fram í Hofi föstudagkvöldið 20. nóvember nk. Tónleikarnir verða síðan í Eldborgarsal Hörpu kvöldið eftir þann 21. nóvember. Dave spilaði á bassa og starfaði með George Michael og Andrew Ridgeley á fyrstu upptökum á lögunum Careless Whisper, Wham Rap, and Club Tropicana.

„Ég var upphaflega í hljómsveit með Paul Ridgeley, þannig að ég þekkti Andrew og George nú þegar nokkuð vel. Við hlustuðum allir á sömu tegund tónlistar og höfðum mjög svipaðan smekk, svo við áttum ýmislegt sameiginlegt. George hafði fengið bassann minn lánaðan nokkrum sinnum, en þegar hann og Andrew byrjuðu að taka upp nokkur af lögunum sem þeir höfðu samið, spurði George hvort ég vildi koma með og spila á bassa í þeim. Þannig fór það að ég spilaði inn á þessar fyrstu upptökur af „Wham! Rap“, „Careless Whisper“ og „Club Tropicana“. Við unnum síðan saman að nokkrum öðrum lögum, þar á meðal nokkrum ábreiðum, eins og til dæmis „Love Machine“. Þetta gekk allt mjög eðlilega fyrir sig. Við vorum bara hópur ungra stráka sem elskuðu tónlist og höfðu gaman af því að skapa hana saman,“ segir Dave.

George bjó yfir ótrúlegum tónlistarhæfileikum

„Mér varð fljótt ljóst að George bjó yfir ótrúlegrum tónlistarhæfileikum. Það var ekki bara lagasmíðahæfileikinn eða röddin því hann hafði líka djúpan skilning á útsetningum og upptökustjórnun. Hann vissi nákvæmlega hvað hann vildi og hafði mjög skýra hugmynd um hvernig hvert lag ætti að hljóma. Og þar sem George gat sjálfur spilað á bassa, hafði hann yfirleitt nokkuð góða hugmynd um hvað hann vildi að ég spilaði. Hann var þó alltaf opinn fyrir því að prófa eitthvað nýtt, svo við gerðum tilraunir með alls kyns hugmyndir til að sjá hvað virkaði best. Ég man eftir að hafa verið að fikta við slap“-bassa í innganginum að laginu Club Tropicana. Ég var hættur að spila þegar George kom allt í einu til mín og spurði hvað ég væri að gera. Það kom í ljós að honum fannst þetta frábært og bað mig um að halda þessu inni. Og það er einmitt sá inngangur sem enn má heyra á plötunni í dag. Þetta var það sem gerði samstarfið við George svo ánægjulegt. Hann hafði skýra sýn á tónlistina sína, en var jafnframt fús til að hlusta á aðrar hugmyndir og sjá hvert þær gætu leitt okkur,“ segir hann.

Dave segir að sýningin Celebrating George Michael skipti hann gríðarlega miklu máli. „Sýningin er virðingarvottur til lífs og tónlistar George, en umfram allt er hún mín leið til að þakka honum fyrir. Það var mér mjög mikilvægt að við gerðum George og tónlist hans full skil. Allt frá útsetningum og hljóðheimi til flutningsins sjálfs. Við höfum lagt hart að okkur við að fanga þann anda og þá tilfinningu sem gerði tónlist hans svo einstaka. Og við erum auðvitað ótrúlega heppin að hafa Steve Mitchell í fararbroddi. Ég held í hreinskilni sagt að enginn komist nær rödd George en Steve, og áhorfendur virðast vera sammála því. En eins og Steve segir sjálfur, þá snýst þetta ekki bara um hann. Þetta snýst um alla hljómsveitina, tónlistina og þá upplifun sem við sköpum saman með áhorfendum. Fyrir mér er eitt það ánægjulegasta að horfa út í salinn, sjá fólk dansa, syngja með, brosa og rifja upp allar þessar dásamlegu minningar. Það er einmitt það sem gerir þessa sýningu svo sérstaka.“

Hlakkar til að koma til Akureyrar

Dave hefur aldrei komið Íslands áður en segist hlakka til að heimsækja landið loksins núna í nóvember.

„Ég hef verið svo heppinn að ferðast um allan heim í mörg ár með ýmsum listamönnum, en af ​​einhverjum ástæðum hef ég aldrei komið til Íslands. Ég hlakka því mikið til að heimsækja landið loksins. Hljómsveitin öll er líka mjög spennt fyrir því að koma til Akureyrar og Reykjavíkur, hitta fólkið þar og spila í þessum fallegu tónleikasölum sem Hof og Harpa eru. Það sem gerir þessa tónleika enn sérstakari er að þeir fara fram örfáum dögum áður en 10 ár verða liðin frá andláti George. Þetta verður því sérstaklega þýðingarmikill tími fyrir okkur öll og dásamlegt tækifæri til að koma saman, fagna ótrúlegu lífi hans og tónlist, og minnast þess hversu miklu máli hann skipti fyrir svo marga,“ segir Dave West ennfremur.

Með honum í fjögurra manna hljómsveit á sviðinu eru frábærir tónlistarmenn sem hafa komið fram og spilað með mörgum af fremstu tónlistarmönnum heims m.a. Nile Rodgers & Chic, Brian May, Simply Red, Kylie Minogue og mörgum fleiri. Þá eru tveir fjölhæfaríkir bakraddarsöngvarar munu koma með kraftmikinn söng og sterka nærveru á sviðið en þeir hafa komið fram með mörgum þekktum hljómsveitum og söngvurum á fjölda tónleika. Og síðast en ekki síst þá er það ssöngvarinn Steve Mtchell, sem er almennt álitinn sem einna besti flytjandi laga George Michael í heiminum, en flutningur hans á sviðinu er kraftmikill og tilfinningaríkur. Saman munu þessir mögnuðu flytjendur koma með ferðalag af frægum lögum sem spanna 35 ár af efni George Michael. Tónleikarnir munu klárlega koma áhorfendum í jólaskap með einu vinsælasta jólalagi allra tíma, Last Christmas, sem og danslögum eins og Wake Me Up Before You Go Go, Faith and Freedom! ’90 og frægum ballöðum eins Careless Whisper, Father Figure and One More Try sem gerðu George Michael að stórstjörnu um allan heim.

Tengdar greinar

Uppfært: 13. nóvember 2026