Fyrsta konan umhverfis tunglið verðlaunuð á Húsavík

Bandaríski geimfarinn Christina Koch hlaut Landkönnunarverðlaun Leifs Eiríkssonar á Húsavík í gærkvöldi, laugardaginn 21. nóvember. Verðlaunin hlaut hún fyrir framlag sitt til landkönnunar og geimrannsókna.
Verðlaun fyrir bestu kvikmyndir Landkönnunarhátíðarinnar voru einnig afhent, en alls voru 36 kvikmyndir frá 15 löndum sýndar á hátíðinni í ár. Hátíðin fór nú fram í tólfta sinn á Húsavík og lýkur fimm daga dagskrá hennar síðar í dag.
Christina Koch
Koch varð í apríl síðastliðnum fyrsta konan í sögunni til að ferðast umhverfis tunglið þegar hún tók þátt í Artemis II leiðangri NASA. Leiðangurinn markaði jafnframt fyrstu mannaferðina til tunglsins í meira en hálfa öld. Koch var ein af fjórum geimförum í leiðangrinum, en förunautar hennar voru bandarísku geimfararnir Reid Wiseman og Victor Glover, sem og hinn kanadíski Jeremy Hansen.
Í ávarpi sínu sagði Koch sérstaka merkingu felast í því að taka við verðlaunum sem bæru nafn Leifs Eiríkssonar. Fyrir meira en þúsund árum hefðu hann og aðrir norrænir landkönnuðir lagt af stað út í hið óþekkta af hugrekki, forvitni og vilja til að fara út fyrir hið kunnuglega, sömu mannlegu eiginleikar hefðu knúið áfram hennar eigin draum um landkönnun.
Koch vitnaði jafnframt í Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, í ávarpi sínu og orð hennar um að auðmýkt þurfi að haldast í hendur við hugrekki og hugrekki við auðmýkt.
„Ég gæti ekki verið meira sammála og það er skuldbinding mín gagnvart þér að leitast við að lifa eftir þessum orðum sem hluta af þeirri ábyrgð sem fylgir þessari viðurkenningu," sagði Koch.
Hún lagði jafnframt áherslu á að enginn áfangi í landkönnun næðist af einum einstaklingi. Hún deildi heiðrinum með þeim þúsundum samstarfsfólks og alþjóðlegra samstarfsaðila sem gera mannaðar geimferðir mögulegar og sagði ánægjulegt að sjá þjóðir heims, þar á meðal Ísland, sameinast um framtíð landkönnunar með Artemis-samkomulaginu og öðru alþjóðlegu samstarfi.
„Saga landkönnunar er að lokum saga mannkynsins. Hún tilheyrir ekki aðeins þeim sem ferðast heldur líka þeim sem ímynda sér, styðja, kenna og veita öðrum innblástur," sagði Koch og lauk ávarpi sínu á íslensku: „Takk fyrir."
Catching Pinecones valin besta kvikmynd hátíðarinnar
Kvikmyndaverðlaun Landkönnunarhátíðar voru einnig afhent í gærkvöldi. Bandaríska heimildamyndin Catching Pinecones var valin besta mynd hátíðarinnar en hún segir sögu Jan og Herb Conn sem voru brautryðjendur í klettaklifri og könnun hella. Bretinn Mark Craig hlaut verðlaun sem besti leikstjórinn fyrir myndina Apollo 1. Fjögur önnur verðlaun voru gefin á kvikmyndahátíðinni en þau eru öll talin upp hér að neðan.

Verðlaunahafar kvikmyndahátíðarinnar 2026 voru:
Besta mynd: Catching Pinecones
Besti leikstjóri: Mark Craig fyrir Apollo 1
Besta vísindamyndin: The Coral & The Copepod
Besta frumsamda tónlist: Justin Wright fyrir Numb Fingers
Besta kvikmyndataka: Eduardo Ascenso Pires fyrir Portúgölsku myndina The Weather Man
Besta klipping: Pólska heimildamyndin Lodołamacz
Tengdar greinar
Uppfært: 22. nóvember 2026










-800x450.jpg&w=3840&q=75)