Gleðin finnst í Freyvangsleikhúsinu
-1600x900.jpg&w=3840&q=75)
Freyvangsleikhúsið frumsýndi á föstudagskvöldið 20.nóv aðventuverkið Marísól og leitin að gleðinni. Verkið er eftir Jóhönnu S. Ingólfsdóttur með frumsamdri tónlist eftir Eirík Bóasson.
Verkið er hugljúf jólasaga um hana Marísól sem er 10 ára stelpa sem er mjög leið yfir komandi jólum, því pabbi hennar sem er sjómaður þarf að vinna yfir jólin. Þegar hún er sofnuð á þorláksmessukvöld þá vaknar uppáhalds bangsinn hennar, hann Viktor, til lífsins og fer með hana í ferðalag til að leita að gleðinni.
Emilía Baldursdóttir skrifaði umfjöllun um verkið sem lesa má hér fyrir neðan:
Yngstu gestir á frumsýningu í Freyvangsleikhúsinu í kvöld voru algjörlega með athygli á sviðinu. Þeir hlustuðu og lifðu sig inn í söguna um hana Marísól, spjölluðu síðan við sögumanninn þegar við átti og höfðu sínar skoðanir. Það tekst ekki alltaf að skrifa og flytja leikrit fyrir börn og hitta í mark en hér var enginn leiður. Til hamingju, Jóhanna og þið öll.
En það er einmitt umfjöllunarefnið, að vera leiður og týna gleðinni sinni út af einhverju sem ekki er til staðar eða er öðruvísi en áður eða bara öðru vísi en við höfðum hugsað okkur. Það er ekki gott en hvað er þá til ráða? Í gegnum ævintýraferð með Viktori bangsa kemst Marísól að því að gleðin felst í að gefa af sér og þiggja af öðrum en hún verður ekki keypt fyrir peninga.
Sýningin rann lipurlega fram, stígandi í sögunni, leikararnir vissir á sínu og gerðu vel en þar mæddi mest á Marísól og Viktori sem eru á sviðinu nánast allan tímann. Umgjörðin lífleg og litrík bæði svið og búningar og lýsingin í takti við umfjöllun og kannski aðeins skotið skelk í bringu í óveðrinu.
Tónlistin skipar verðugan sess, lögin hans Eika ljúf og áheyrileg og falla vel að efni og hljómsveitin skilaði sínu með ágætum. Það er alltaf meira gaman að hafa hljómsveitina á staðnum frekar en músikin komi úr einhverjum kassa. Leiksýning er afrakstur samstarfs margra aðila, við sjáum þá ekki alla á sviðinu en vitum að án þeirra hefði ekki verið nein sýning. Í leikhúsi áhugamanna fær enginn borgað í peningum en fær hins vegar þessa gleði í hjartað sem um er rætt.
Boðskapur sýningarinnar um Marísól og leitina að gleðinni er ekki flókinn en sannur. Hann náði algjörlega til yngstu gestanna en kannski er okkur gömlu börnunum ekki síður þörf á að rifja þetta upp með gleðina sem ekki fæst keypt.
Ég hvet því gömlu börnin til að drífa sig með yngri börnin í Freyvang nú á aðventunni og njóta.
Tengdar greinar
Uppfært: 21. nóvember 2026










