MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Fyrsti barna- og unglingageðlæknir HSN í nýrri stöðu innan sálfélagslegrar þjónustu

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Hrefna_portrait
kaffid.is

Akureyringurinn Hrefna Sæunn Einarsdóttir er fyrsti barna- og unglingageðlæknirinn hjá HSN í nýrri stöðu innan sálfélagslegrar þjónustu HSN. Eitt af hennar markmiðum verður að vinna með samstarfsfólki að þróun heildstæðari og sérhæfðari þjónustu fyrir börn og fjölskyldur þeirra í heimabyggð. Þetta kemur fram á vef HSN í dag.

Hrefna starfar innan sálfélagslegrar þjónustu og er læknir í Geðheilsuteymi barna. Þar vinna ólíkar fagstéttir saman að því að meta vanda barna og finna viðeigandi leiðir til stuðnings og meðferðar. Hrefna leggur áherslu á að teymisvinna sé lykilatriði. Til að skilja líðan barns þurfi oft að skoða aðstæður þess frá mörgum sjónarhornum, í samstarfi við foreldra, skólaþjónustu, félagsþjónustu og aðra sem koma að málefnum þess.

Staða Hrefnu er ný hjá HSN og hlutverkið er enn í mótun, en eitt þeirra verkefna sem eru í undirbúningi og er á vegum Heilbrigðisráðuneytisins snýr að aukinni aðkomu heilbrigðisþjónustu í heimabyggð að ADHD-greiningum barna. Verkefnið er tilraunaverkefni, með það að markmiði að stytta bið og færa þjónustuna nær börnum og fjölskyldum þeirra. Verkefnið er enn í undirbúningi og útfærslu.

„Við þurfum að kynnast barninu og skoða heildarmyndina. Stundum þarf að styðja foreldra, stundum að vinna með skólanum og oft þarf að gera hvort tveggja. Það skiptir máli að við mætum barninu á réttum forsendum. Það sem skiptir mestu máli er að geta boðið börnum og fjölskyldum þeirra heildstæðari og sérhæfðari þjónustu í heimabyggð,“ segir Hrefna á vef HSN.

Staða Hrefnu er ný hjá HSN og hlutverkið er enn í mótun, en eitt þeirra verkefna sem eru í undirbúningi og er á vegum Heilbrigðisráðuneytisins snýr að aukinni aðkomu heilbrigðisþjónustu í heimabyggð að ADHD-greiningum barna. Verkefnið er tilraunaverkefni, með það að markmiði að stytta bið og færa þjónustuna nær börnum og fjölskyldum þeirra. Verkefnið er enn í undirbúningi og útfærslu.

Nánar má lesa um Hrefnu á vef HSN með því að smella hér.

Tengdar greinar

Uppfært: 29. október 2026