Félagsráðgjafi gefur út dagbókina Skipulag & sjálfsrækt

Ingibjörg Þórðardóttir, klínískur félagsráðgjafi á Akureyri, gaf út dagbókina „Skipulag & sjálfsrækt“ nú á dögunum. Bókin er ætluð til þess að hjálpa fólki að stunda sjálfsrækt og halda skipulagi á ýmis venjum í daglegu lífi. Ingibjörg segist hafa byrjað að hanna bókina fyrir sjálfa sig eftir að hún greindist með langvinnt Covid.
„Tilurð bókarinnar má rekja til þess að ég sjálf greindist með langvinnt Covid (mögulega ME) fyrir um þremur árum síðan og þurfti í framhaldinu að enduskoða ýmislegt í mínu lífi og starfi. Sjálf hef ég, í gegnum tíðina, mikið notað ýmis konar dag- og skipulagsbækur og langaði til að hanna mína eigin. Þessi bók er afurð af þeirri vinnu og er einföld í notkun, sem gerir það auðveldara að nota hana daglega.“
Auk persónulegrar reynslu segir Ingibjörg faglega reynslu sína einnig hafa komið að gagni við hönnun bókarinnar, en hún er klínískur félagsráðgjafi og hefur starfað á sinni eigin stofu á Akureyri, Hugrekki – Ráðgjöf og fræðslu, síðan 2013. Einnig hefur hún haldið fjölda námskeiða fyrir bæði fagfólk og almenning um sjálfsstyrkingu og sjálfsrækt, sem og um ofbeldi, fjarmeðferð og fleira; „Ég hef því einnig ýmis konar faglega reynslu þegar kemur að því að takast á við áskoranir og áföll í lífinu og hefur sú reynsla einnig verið gagnleg í hönnun þessarar bókar.“
Frekari upplýsingar um bókina er að finna á Facebook síðu Hugrekkis, Hugrekki – Ráðgjöf og fræðsla (smella hér) eða í tölvupósti á hugrekki@hugrekki.is.
Tengdar greinar
Uppfært: 15. nóvember 2026










