Sögur úr Samkomuhúsinu – Kvaddi á leið til Lykla Péturs

Flest leikhús geyma sögur af draugagangi. Oftar en ekki eru það látnir leikarar eða leikstjórar sem ráfa um húsakynnin löngu, og ekki svo löngu, eftir andlát. Samkomuhúsið á Akureyri er þar engin undantekning.
Þann 20. janúar næstkomandi eru 120 ár liðin frá því fyrsta leiksýningin var frumsýnd í Samkomuhúsinu. Að því tilefni ætlum við, á næstu vikum, að rifja upp nokkrar sögur úr 120 ára sögu Samkomuhússins. Sögurnar verða allskonar enda úr nægu að taka en við byrjum sögustundina á draugasögum Samkomuhússins.
Í Samkomuhúsinu á Akureyri hafa margir aðilar orðið varir við umgang og brölt þegar engan er þar að sjá.
Þráinn Karlsson var einn af fyrstu fastráðnu leikurunum hjá Leikfélagi Akureyrar. Hann var fastráðinn frá því að félagið varð að leikfélagið varð að atvinnuleikhúsi árið 1971. Þráinn fór einnig með fjölda hlutverka í útvarpi, sjónvarpi og kvikmyndum. Hann var sannarlega einn helsti máttarstólpi Leikfélags Akureyrar en auk þess að leika fjölda burðarhlutverka leikstýrði hann ásamt því að hanna og smíða leikmyndir.
Hann vann oft langt fram eftir kvöldi og í eitt af þeim skiptum sem að vinnudagurinn varaði fram á kvöld var hann einn að bardúsa í smíðaværkstæði Leikfélagsins. Þegar klukkan var langt gengin í tíu gerir hann sig kláran til heimferðar, fer upp að sviðinu og slekkur ljósin, gengur til baka gegnum sviðsdyrnar og lokar á eftir sér. Þarna sem hann stendur einn í húsinu í mestu makindum að hella sér kaffi í bolla, heyrir hann bank á dyrnar fyrir aftan sig og bregður heldur betur í brún. Hann mundi það skýrt að bankað var þrisvar. Bank – bank – bank!
Þráinn snýr sér við og sér þá hurðina opnast, nákvæmlega í 45 gráður, eins og hann orðaði það sjálfur í útvarpsþættinum Furðusögur úr leikhúsheiminum frá árinu 1989. Hinu megin við hurðina var þó engan að sjá. Svo mikið varð Þráni um að hann gleymir að hann er enn að hella kaffi í bollann sem flæddi nú í stríðum straumum um borðið og niður á gólf. Daginn eftir fær hann svo þær fréttir að góðum vini hans og samleikara hafði verið ekið í skyndi upp á spítala þetta sama kvöld. Þar var hann úrskurðaður látinn rétt um klukkan tíu. Var Þráinn þá fullviss um að á leið sinni til Lykla Péturs hafi vinurinn komið við í Samkomuhúsinu til að kveðja, bæði húsið og Þráinn Karlsson.
Jón Norðfjörð var þrettán ára þegar hann steig fyrst á svið Samkomuhússins. Á ferli sínum lék Jón í og leikstýrði fjölmörgum sýningum Leikfélags Akureyrar, og varð síðar bæjargjaldkeri í þokkabót. Á Akureyri var því hægt að sjá Jón leika Fjalla-Eyvind á flótta undan yfirvöldum á sunnudagskvöldi og fá hjá honum kvittun fyrir lóðagjöldum á mánudagsmorgni.
Vorið 1957 leikstýrði Jón Gullna hliðinu í tilefni af 40 ára afmæli Leikfélags Akureyrar. Æfingar gengu með prýði og voru langt komnar þegar hann varð bráðkvaddur, aðeins 52 ára að aldri, rúmum 30 dögum fyrir frumsýningu. Sagan segir að sökum þess að Jóni náði ekki að hneigja sig á frumsýningardeginum komi hann oft í Samkomuhúsið og horfi á heilu sýningarnar og stundum þegar lófaklappið ómar sem hæst í lok sýninga má víst sjá háan, grannan mann sem hvergi er getið í leikskrá hneigja sig með leikhópnum.
Lumar þú á skemmtilegri sögu eða minningu úr Samkomuhúsinu? Endilega hafðu samband á kaffid@kaffid.is.
Þann 20. janúar 1907 fór fyrsta frumsýningin fram á fjölum Samkomuhússins. Leikfélag Akureyrar fagnar þessum tímamótum með einstakri hátíðardagskrá þar sem stiklað verður á stóru í 120 ára leiklistarsögu þessa fallega húss. Flutt verða lög og stuttar senur úr ástsælum sýningum á borð við My Fair Lady, Litlu hryllingsbúðina, Fjalla Eyvind og Deleríum Búbónis. 120 ára afmæli Samkomuhússins verður frumsýnt 20. janúar og alls verða sex sýningar á verkinu á tímabilinu 20. janúar 2027 til 6. febrúar 2027.
Tengdar greinar
Uppfært: 15. nóvember 2026










