Góðvinir Háskólans á Akureyri ætla að bjóða almenningi í heimsókn í háskólann í samstarfi við Félag eldri borgara á Akureyri, Virk efri ár hjá Akureyrarbæ, Sjúkrahúsið á Akureyri og Heilbrigðisstofnun Norðurlands til að fræðast um ýmis áhugaverð málefni. Opið hús er yfirskriftin og hefst dagskráin 16. febrúar næstkomandi klukkan 14:00.
Skúli Bragi Geirdal ríður á vaðið með fræðslu um tölvuöryggi. Það mál brennur á mörgum í dag og í vaxandi mæli er verið að nýta sér tækni til að brjóta á fólki. Fræðslunni er ætlað að gefa innsýn inn í þær leiðir sem einstaklingar geta farið til að bæta sitt tölvuöryggi.
Skúli Bragi er fjölmiðlafræðingur að mennt. Hann er Akureyringum að góðu kunnur, hefur stundað nám og kennir við HA og hefur þjálfað fótbolta í bænum. Í dag starfar hann sem sviðsstjóri Netvís – Netöryggismiðstöðvar Íslands. Hann stofnaði og heldur úti Tengslaneti um upplýsinga- og miðlalæsi á Íslandi auk þess sem hann leiðir vinnuhóp forseta Íslands sem ber vinnuheitið “Símafriður”.
Smellið hér fyrir nánari upplýsingar um Opið hús með Skúla Braga.
Samstarf opnar dyr
Nýskipuð stjórn Góðvina vill með þessari nýjung opna dyr háskólans enn frekar og undirstrika að Háskólinn á Akureyri er háskólinn okkar allra. Samstarfsaðilarnir sem standa að þessu framtaki ákveða í sameiningu umfjöllunarefni hverju sinni.
Boðið verður fjórum sinnum á Opið hús misserinu og verða þau á mánudögum klukkan 14:00 í stofu M102 í Sólborg gestum að kostnaðarlausu. Hver fyrirlestur verður kynntur sérstaklega og hægt er að nálgast nánari upplýsingar og dagsetningar á Viðburðadagatali Háskólans. Smelltu hér til að nálgast það.
Þá má einnig benda á nýjan greinaflokk Góðvina sem ber heitið Veganestið þar sem kynntir eru til sögunnar brautskráðir nemendur og vakin athygli á árangri þeirra. Nú þegar er búið að birta viðtöl við Valdimar Víðisson bæjarstjóra Hafnarfjarðar, Helgu Sigurrósu Valgeirsdóttur stjórnanda á fyrirtækjasviði Arion banka og Guðmund Gunnarsson, aðstoðarmann utanríkisráðherra. Nálgast má viðtölin á fb síðu Góðvina.


COMMENTS