Grófin geðrækt á afmæli í dag og hefur verið starfrækt í 12 ár. Grófin verður með viðveru á Glerártorgi í dag að kynna starfsemina í tilefni alþjóðlega geðheilbrigðisdagsins frá klukkan 14 til 17:30.
Grófin geðrækt er gjaldfrjálst úrræði fyrir einstaklinga 18 ára og eldri á öllum stigum lífsins sem vilja bæta heilsuna með geðrækt og batavinnu gegnum hópastarf á jafningjagrundvelli. Markmið Grófarinnar er meðal annars að skapa tækifæri fyrir þau sem glíma við andlega erfiðleika til að vinna í sínum bata á eigin forsendum og á eigin ábyrgð, sem og að skapa vettvang fyrir öll þau sem vilja vinna að geðrækt á jafningjagrundvelli, hvort sem þeir eru notendur geðheilbrigðisþjónustunnar, fagaðilar, aðstandendur eða einfaldlega áhugafólk um framfarir í geðheilbrigðismálum.
Auk þess leitast Grófin eftir því að bæta lífsgæði þátttakenda og að standa að samfélagsfræðslu og forvörnum til að auka skilning og draga úr fordómum gagnvart þeim sem glíma við geðraskanir. Einnig að stuðla að bættri nálgun í geðheilbrigðiskerfinu þar sem hugmyndir valdeflingar um notendasýn og bataferli á jafningjagrundvelli fái aukið jafnvægi.


COMMENTS