Guðbjörg Ósk Sveinsdóttir var í gær kjörin íþróttamaður Dalvíkurbyggðar við hátíðlega athöfn í menningarhúsinu Bergi á Dalvík.
Guðbjörg varð Íslandsmeistari kvenna í snocrossi árið 2025. Hún var á árinu einnig valin akstursíþróttakona ársins hjá mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasambandi Ísland og nýliði ársins hjá Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasambandi Íslands.
Við kjörið veitti Íþrótta- og æskulýðsráð einnig styrki úr afreks og styrktarsjóði Dalvíkurbyggðar.
Þau sem fengur styrk þetta árið voru:
Arnór Darri Kristinsson – Hestamaður
Barri Björgvinsson – Skíðamaður
Hafdís Nína Elmarsdóttir – Knattspyrnukona
Hafsteinn Thor Guðmundsson – Golfari
Lovísa Lilja Friðjónsdóttir – Snjóbrettakona
Lovísa Rut Aðalsteinsdóttir – Blakkona
Lukka Viktorsdóttir – Snjóbrettakona
Matthías Helgi Ásgeirsson – Skíðamaður
Óskar Valdimar Sveinsson – Skíðamaður
Sunna Lind Egilsdóttir – Fimleikakona
Torfi Jóhann Sveinsson – Skíðamaður
Valgerður Fríður Lórenz Tryggvadóttir – Skíðakona


COMMENTS