Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Menning

Guðbjörg Ringsted opnar málverkasýningu í Mjólkurbúðinni

Eftir Ingólfur Stefánsson·

Guðbjörg Ringsted opnar málverkasýninguna ,,Hring eftir hring“ í Mjólkurbúðinni, sal Myndlistarfélagsins á Akureyri laugardaginn 28. nóvember frá klukkan 14 til 18.

Þar sýnir hún ný verk og viðfangsefnið er sem fyrr útsaumsblóm af íslenskum kven- þjóðbúningum. Guðbjörg hefur unnið með þetta þema í nokkur ár og vinnur frjálst með efnið. Það má e.t.v. segja að blómin öðlist sitt eigið líf á myndfletinum og fari sínar eigin leiðir. Oft er þar einhverskonar dans blómanna á myndfletinum eða frelsisþrá, eitt blómanna skýst af leið eða sker sig úr á annan hátt.

Guðbjörg útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1982, grafíkdeild, og hefur unnið að myndlist síðan þá. Fyrst  með grafíkina, síðan teikningar en akrýlmálverkið er nú allsráðandi. Þetta er 37.einkasýning Guðbjargar en samsýningarnar eru rúmlega fimmtíu (sjá www.gudbjorgringsted.is)

Sýningin stendur til 6.desember og er opin frá klukkan 14 til 17 alla dagana.

Tengdar greinar

Uppfært: 27. nóvember 2026