Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember klukkan 15 í Hofi.
María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám við Ríkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu sína við Ísland.
Um verkin segir María: „Á sýningunni Upplausn og blómgun leitast ég við aðfanga það sem liggur á mörkum hins sýnilega og hins dulda, þar sem lífrænform náttúrunnar breytast í innra hugarástand. Form blómsins og hvernig það breytist í tímans rás fylgir þeirri tilfinningu sem ég ber í hjartanu. Með því að vinna með olíu og terpentínu á striga leyfi ég efninu að ráða för, ég leyfi litnum að leysast upp, flæða, renna og leita eigin leiða, hömlur hverfa og eftir standa hughrif. Formin fæðast hægt og rólega úr mörgum lögum af lit, áferð og hreyfingu. Verk mín endurspegla þannig stöðugt samtal á milli þess sem var og nýs veruleika sem hefur í för með sér upplausn en um leið nýja sýn, ný tækifæri og blómgun.“
Verkin sem eru aðallega unnin með olíu á striga, vinnur hún með áhrif frá ítalska endurreisnartímabilinu og hráan kraft íslenskrar náttúru og birtu.
María hefur haldið einkasýningar sem og tekið þátt í samsýningum, bæði á Íslandi og á Ítalíu. Verk hennar á þessari sýningu endurspegla þetta stöðuga samtal á milli tveggja landa, þar sem hún vinnur með klassísk form, birtu og hringrás náttúrunnar á kraftmikinn og ljóðrænan hátt.
Sýningin stendur til 17. janúar 2027
Tengdar greinar
Uppfært: 10. nóvember 2026










