HA leiðir nýtt verkefni um framtíð ferðaþjónustufyrirtækja

HA leiðir nýtt verkefni um framtíð ferðaþjónustufyrirtækja

Háskólinn á Akureyri leiðir nýtt alþjóðlegt samstarfsverkefni, Next GEN Tourism, sem hlotið hefur 250.000 evra styrk úr Erasmus+ áætluninni til næstu tveggja ára. Verkefnið miðar að því að styrkja getu og þekkingu lítilla og meðalstórra ferðaþjónustufyrirtækja til að takast á við kynslóðaskipti og tryggja áframhaldandi rekstur þeirra til framtíðar. Verkefnastjóri er Verena Karlsdóttir, lektor hjá Viðskiptadeild. Greint er frá á vef Háskólans á Akureyri.

Fyrsti samstarfsfundurinn var haldinn í janúar síðastliðnum þar sem fulltrúar samstarfsaðilanna komu saman og mótuðu sameiginlega framtíðarsýn og næstu skref. Á fundinum var lögð áhersla á að verkefnið skili raunverulegum ávinningi fyrir ferðaþjónustufyrirtæki og þau samfélög sem byggja afkomu sína að stórum hluta á ferðamennsku.

Á næstu tveimur árum verður svo þróað fjölbreytt efni og stafrænar lausnir sem nýtast bæði fræðsluaðilum, ráðgjöfum og fyrirtækjum. Áhersla er lögð á að efnið verði hagnýtt og aðgengilegt óháð tíma, staðsetningu eða mismunandi þörfum notenda. Þá er stefnt að því að styrkja hæfni þeirra sem koma að kennslu og ráðgjöf í ferðaþjónustu, þannig að þau geti stutt fyrirtæki mun betur þegar kemur að undirbúningi fyrir næstu kynslóð leiðtoga.

„Með því að efla skilning og færni í kynslóðaskiptum styður verkefnið við fjölbreytt samfélög, vinnumarkað og menningarlega arfleifð svæða sem treysta á ferðaþjónustu. Markmiðið er að byggja upp sjálfbæran grunn fyrir framtíð ferðaþjónustunnar og tryggja að fyrirtæki geti haldið áfram starfsemi sinni með styrk, fagmennsku og skýra framtíðarsýn,“ segir í tilkynningu Háskólans en nánar má lesa um málið á vef HA með því að smella hér.

Frekari upplýsingar um verkefnið má finna á vefsíðu verkefnisins og á samfélagsmiðlum verkefnisins Next GEN Tourism, sem nálgast má með því að smella á hlekkina hér fyrir neðan.;

LinkedIn

Facebook

Instagram

COMMENTS