Hæstiréttur hafnaði kröfu KA

Hæstiréttur hafnaði kröfu KA

Hæstiréttur hefur hafnað kröfu KA um að taka mál félagsins gegn Arnari Grétarssyni fyrir. Dómur Landsréttar stendur því óhaggaður og samkvæmt honum þarf KA að greiða Arnari rúma 9,3 milljónir króna auk dráttarvaxta aftur til nóvember 2023. Að auki þurfti KA að greiða um 2 milljónir í málskostnað. Þetta kemur fram á vef Fótbolti.net sem fjallar um dóminn í dag.

Arnar er fyrrum þjálfari KA sem stefndi félaginu á síðasta ári. Hann taldi sig eiga inni ógreiddan bónus frá KA fyrir að hafa hjálpað liðinu að komast í Evrópukeppni.

„Málið snýst um klásúlu í samningi Arnars sem sagði að ef KA næði Evrópusæti fengi hann því sem nemur 10% af allri þeirri fjárhæð sem félagið fengi greitt frá UEFA vegna þátttöku í Evrópukeppni. Arnar var rekinn frá KA áður en tímabilinu lauk,“ segir í umfjöllun Fótbolti.net

Arnar sótti málið fyrir rétti og hafði betur í Héraðsdómi og Landsrétti. KA sóttist eftir því að málið yrði tekið fyrir í Hæstarétti en þeirri kröfu hefur nú verið hafnað.

Hægt er að lesa um ákvörðun Hæstaréttar með því að smella hérna.

Heimild: Fótbolti.net

Mynd: Fótbolti.net – Hafliði Breiðfjörð

COMMENTS