Hans Viktor Guðmundsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild KA og er nú samningsbundinn félaginu út sumarið 2027. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef KA í dag.
„Þetta eru stórkostlegar fréttir en Hans Viktor hefur verið algjörlega frábær frá því hann gekk í raðir KA fyrir sumarið 2024,“ segir í tilkynningunni.
Hans Viktor er að klára sitt annað tímabil með KA. Hann kom strax af miklum krafti inn í félagið og var valinn besti leikmaður liðsins á síðustu leiktíð er KA varð Bikarmeistari í fyrsta skiptið. Hann hefur í kjölfarið byggt enn frekar á þeirri frammistöðu í sumar er KA lék meðal annars gegn liði Silkeborg í Sambandsdeild UEFA.
„Hans sem er nýorðinn 29 ára er stór og stæðilegur miðvörður sem er öflugur í návígjum, fljótur og góður að spila boltanum. Hugarfarið hans er til fyrirmyndar þar sem hann gefur alltaf allt í leikinn og heldur haus þegar illa gengur. Þrátt fyrir að leika í hjarta varnarinnar hefur Hans Viktor skorað fjögur mörk í deild og bikar fyrir KA en í heildina hefur hann nú leikið 57 leiki fyrir félagið í deild, bikar og Evrópu,“ segir í tilkynningu KA.
Hans er uppalinn hjá Fjölni þar sem hann hafði leikið allan sinn feril áður en hann gekk í raðir KA en með Fjölni lék hann 81 leik í efstu deild auk 73 leikja í næstefstu deild. Þá lék hann 12 leiki fyrir U21 árs landslið Íslands á sínum tíma og skoraði í þeim eitt mark.
„Það er ákaflega jákvætt að Hans Viktor sé búinn að skrifa undir nýjan samning við KA og er það lykilskref í undirbúningi liðsins fyrir næsta tímabil að halda honum innan okkar raða. Með frammistöðu sinni með KA hefur hann eðlilega vakið athygli annarra liða og erum við í skýjunum með að halda honum áfram gulum og bláum,“ segir á vef KA.


COMMENTS