Háskóladagurinn á Akureyri 

Háskóladagurinn á Akureyri 

Hvaða nám og störf langar þig að skoða og máta við þig og þinn áhuga? Háskóladagurinn er fyrir öll sem eru að velta þessu fyrir sér — hvort sem fólk hefur skýra sýn á framtíðina eða stendur alveg á byrjunarreit.

Miðvikudaginn  11. mars kynna allir háskólar landsins fjölbreytt námsframboð sitt í Háskólanum á Akureyri. Háskóladagurinn er samstarfsverkefni allra háskóla landsins og ómissandi fyrir þau sem hyggja á háskólanám. Það er enda margfalt léttara að taka næsta skref þegar þú hefur skoðað möguleikana með eigin augum. 

Á Háskóladeginum færðu einstakt tækifæri til að hitta fulltrúa frá háskólunum — spyrja spurninga, fá  góð ráð og sjá allar þessar fjölbreyttu og spennandi leiðir sem eru í boði hjá Háskólanum á Akureyri, Háskóla Íslands, Háskólanum á Hólum, Landbúnaðarháskóla Íslands, Háskólanum á Bifröst, Háskólanum í Reykjavík og Listaháskóla Íslands.

„Það eru öll hjartanlega velkomin á Háskóladaginn,“ segir Laila Sæunn Pétursdóttir, verkefnastjóri Háskóladagsins, „hvort sem fólk veit nákvæmlega hvað það vill læra eða er enn að skoða möguleikana. 

Háskóladagurinn getur ekki bara breytt stefnu fólks, hann getur hreinlega breytt lífinu. Ég segi bara, ekki missa af þessu frábæra tækifæri að finna nám sem hentar þér og þínu áhugasviði.“ 

Hér má finna Facebook viðburð dagsins https://fb.me/e/47eHOC5m5 og allar upplýsingar eru einnig á www.haskoladagurinn.is 

COMMENTS