Sigríður Atladóttir, hjúkrunarfræðingur hjá HSN á Sauðárkróki, rannsakaði í meistaraverkefni sínu við Háskólann á Akureyri fræðslu og fræðsluóskir eldra fólks á Norðurlandi út frá aldri, búsetu, heilsulæsi, kyni, líkamsþyngdarstuðli og menntun. Sigríður hefur mikinn áhuga á heilsueflingu fullorðinna og ákvað að rannsaka hvaða heilbrigðisfræðslu hraust, eldra fólk sem ekki tilheyrir sérstökum sjúklingahópum hefur fengið og hvaða fræðslu það vill fá. Fjallað er um rannsókn Sigríðar á vef HSN.
Rannsóknin ber titilinn „Heilbrigðisfræðsla til eldra fólks á Norðurlandi: lýðgrunduð þversniðsrannsókn“. Sigríður safnaði gögnum frá fólki 67 ára og eldri í Þingeyjarsýslum. Gagnasöfnunin var hluti af stærra verkefni sem unnið var af stærra þverfaglegu rannsóknarteymi sem Dr. Árún K. Sigurðardóttir hjá Háskólanum á Akureyri fór fyrir veturinn 2017-2018.
Í rannsókninni kom fram að eldra fólk fær helst fræðslu um lyfjanotkun, næringu og hreyfingu, en niðurstöðurnar sýndu að það vill meiri og markvissari fræðslu um mataræði, hreyfingu og þyngdarstjórnun. Einnig kom í ljós bæði kynbundinn munur á fræðslu og munur eftir búsetu.
„Fólk í heilsueflandi móttöku, t.d. með hjartveiki eða sykursýki, fær markvissari fræðslu, en fræðsla til heilbrigðs eldra fólks út í samfélaginu hefur ekki verið rannsökuð áður, og ég fann enga sambærilega erlenda rannsókn,“ segir Sigríður.
Ítarlega umfjöllun um rannsókn Sigríðar má finna á vef HSN með því að smella hér.


COMMENTS