Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri, SAk, hefur óskað eftir því að láta af störfum og hefur náðst samkomulag þar um. Þetta gerði hún eftir að Alma Möller heilbrigðisráðherra ákvað að auglýsa stöðuna að loknum fimm ára skipunartíma Hildigunnar.
„Í ljósi þeirrar ákvörðunar hef ég óskað eftir að láta af störfum frá og með deginum í dag. Ég tel mikilvægt að skýr forysta og fullt traust ríki um stöðu forstjóra og að nýr aðili taki við sem fyrst. Heilbrigðisráðuneytið hefur fallist á þá beiðni,“ skrifaði Hildigunnur.
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að auglýsa embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri laust til umsókna og mun skipunartími renna út 31. ágúst næstkomandi. Erla Björnsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs sjúkrahússins, mun gegna embættinu þar til nýr forstjóri hefur verið skipaður
Hér að neðan má sjá póstinn sem Hildigunnur sendi á starfsfólk í dag:
Kæra samstarfsfólk
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að auglýsa stöðu forstjóra að loknu fimm ára skipunartímabili mínu. Í ljósi þeirrar ákvörðunar hef ég óskað eftir að láta af störfum frá og með deginum í dag. Ég tel mikilvægt að skýr forysta og fullt traust ríki um stöðu forstjóra og að nýr aðili taki við sem fyrst. Heilbrigðisráðuneytið hefur fallist á þá beiðni.
Það hefur verið mér mikill heiður að starfa með ykkur undanfarin ár og áratugi. Á þessum árum höfum við tekist á við krefjandi verkefni, byggt upp starfsemina og styrkt stöðu sjúkrahússins í þágu sjúklinga og samfélagsins.
Ég vil þakka ykkur af heilum hug fyrir ykkar fagmennsku, elju og samstarf.
Hlýjar kveðjur,
Hildigunnur Svavarsdóttir


COMMENTS