Hlaut styrk til að rannsaka fylgjuþurrð

Hlaut styrk til að rannsaka fylgjuþurrð

Jóhanna Gunnarsdóttir, forstöðumaður fræðasviðs fæðinga- og kvensjúkdómalækninga Landspítala og Háskóla Íslands, hefur hlotið verkefnastyrk Rannís til rannsóknar á vanstarfsemi fylgju, svokallaðri fylgjuþurrð, og áhrifum þess á fæðingu barns.

Í rannsóknarhópnum er meðal annarra Alexander Smárason, yfirlæknir í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum á SAk og prófessor við Heilbrigðisvísindastofnun Háskólans á Akureyri og SAk. Fjallað er um málið á vef Sjúkrahússins á Akureyri.

Verkefnið ber heitið „Innsýn í fylgjuþurrð með fylgjuvefjaskoðun til að bæta forspá um meðgöngueitrun og andvana fæðingar.“

Markmið rannsóknarinnar er að bæta forspár um snemmkomna fylgjuþurrð, sem birtist oft sem meðgöngueitrun, og bæta greiningu síðkominnar fylgjuþurrðar sem getur valdið fósturdauða fyrirvaralaust án einkenna.

Ólíkt öðrum rannsóknum verður stuðst við fylgjuvefjaskoðun til að skilja betur ástæður fylgjuþurrðar. Rýnt verður í tvær vefjameinafræðilegar tegundir fylgjuþurrðar, blóðflæðistruflun og bólgu í fylgjutotum. Rannsóknarhópurinn hyggst auka skilning á fylgjuþurrð og afleiðingum hennar með því að tengja vefjaskemmdirnar við einkenni og lífmerki.

Samþætting klínískra, lífefnafræðilegra og vefjafræðilegra gagna verður dýrmætur grunnur að framtíðar rannsóknum og mun stuðla að bættri forspá og forvörnum gegn alvarlegum afleiðingum fylgjuþurrðar.

Ítarlegri umfjöllun má finna á vef Sjúkrahússins á Akureyri með því að smella hér.


COMMENTS