Þær Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir, Anna Berglind Pálmadótir og Rannveig Oddsdóttir úr UFA hlupu maraþon á undir þremur tímum í Sevilla maraþoninu 15. febrúar síðastliðinn. Aðeins níu íslenskar konur hafa náð þeim áfanga. Fjallað er um afrekið á vef UFA.
Í umfjöllun UFA segir að Sigþóra Brynja hafi verið fyrst þeirra þriggja á 2:51:25, Anna Berglind önnur á 2:51:42 og Rannveig Oddsdóttir þriðja á 2:53:23. Tímar Sigþóru og Önnu Berglindar eru þeirra bestu tímar í maraþoni til þessa og skipa þeim í fjórða og fimmta sæti á lista yfir bestu maraþontíma íslenskra kvenna frá upphafi. Rannveig hljóp á 44 sek betri tíma í Berlínarmaraþoni 2012 sem er sjöundi besti tími frá upphafi og tíminn hennar nú hefði tryggt sama sæti á listanum.
Tímar Önnu Berglindar og Rannveigar eru jafnframt Íslandsmet í aldursflokkum. Anna Berglind bætti eigið met í aldursflokki 45-49 ára kvenna (fyrra met hennar var 2:53:05) og Rannveig bætti met Sigurbjargar Eðvarðsdóttur í flokki 50-54 ára kvenna um nærri 13 mínútur en metið var 3:06:09.


COMMENTS