Mælingar frá búnaði sem settur var upp í apríl 2025 til að telja fjölda ökutækja og reikna hlutfall þeirra sem eru á nagladekkjum sýna að hlutfall bíla á nagladekkjum hefur aukist á Akureyri. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.
Mælingar sýna að á árunum 2005 til 2014 voru um 60 prósent bíla á nagladekkjum yfir vetrartímann, en í dag er hlutfallið komið yfir 80 prósent. Ökumenn eru þó byrjaðir að taka nagladekk undan fyrr á vorin en áður.
Teljarinn er staðsettur við gangbraut yfir Hlíðarbraut, milli Hlíðarfjallsvegar og Merkigils. Myndavélar nema þegar ökutæki nálgast og virkja hljóðgreiningu til að meta hvort nagladekk séu notuð. Við greininguna eru engin persónugreinanleg gögn vistuð.
Samkvæmt reglum er óheimilt að nota nagladekk á tímabilinu 15. apríl til 31. október, nema brýn nauðsyn sé fyrir hendi vegna hálku eða vetraraðstæðna.Nagladekk auka svifryk, valda meiri hávaða og slíta malbiki hraðar en önnur dekk, sem leiðir til aukins viðhaldskostnaðar.
Í tilkynningu Akureyrarbæjar eru ökumenn hvattir til þess að velja nagladekk aðeins þegar aðstæður krefjast þess.



COMMENTS