HSN á Akureyri prófar gervigreindartól – meiri tími með hverjum skjólstæðingi

HSN á Akureyri prófar gervigreindartól – meiri tími með hverjum skjólstæðingi

Prófanir á gervigreindartólinu Skríban eru hafnar hjá HSN á Akureyri. Á vef HSN segir að Skríban umbreyti tali læknis í nótu svo læknar geti eytt meiri tíma með hverjum skjólstæðingi.

„Mikill metnaður er innan HSN um að nýta stafrænar lausnir til að efla skilvirkni og aðgengi að upplýsingum, sem er einmitt í takt við markmið Heilbrigðisráðuneytisins um stafræna heilsu. Nú í febrúar hófst nýtt og spennandi tilraunaverkefni hjá HSN á Akureyri um notkun gervigreindar til að minnka þann tíma og álag sem pappírsvinna og skýrslugerð er fyrir lækna og dregur athyglina frá því sem raunverulega skiptir máli – skjólstæðingnum sjálfum,“ segir í tilkynningu HSN.

Verkefnið felur í sér prófun á gervigreindartólinu Skríban, sem umbreytir tali læknis í læknanótu í rauntíma og getur jafnvel tekið upp heilt samtal læknis og skjólstæðings og gert úr því tilbúna nótu. Guðrún Dóra Clarke, framkvæmdastjóri lækninga hjá HSN, innleiðir verkefnið í samvinnu við Jón Halldór Hjartarson, heimilislækni hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem einnig starfar hjá HSN og hjá nýsköpunarfyrirtækinu Careflux. Hann kynntist þeim möguleikum sem gervigreind getur boðið upp á í gegnum gæðaverkefni í sínu sérnámi í heimilislækningum sem unnið var í samstarfi við Careflux, en fyrirtækið sérhæfir sig í þróun gervigreindarlausna fyrir heilbrigðiskerfið.

Guðrún Dóra segir að Skríban sé hönnuð af læknum sem skilja það álag sem pappírsvinna er í læknisviðtali. „Venjubundinn tími hjá lækni eru tuttugu mínútur sem eru mjög dýrmætar og eiga að duga í allt; upplýsingaöflun, skoðun, úrvinnslu og skráningu á viðtali, jafnvel gera tilvísanir og panta blóðprufur og aðrar nauðsynlegar rannsóknir. Skráning viðtals getur tekið umtalsverðan tíma en Skríban gefur okkur meiri tíma með hverjum skjólstæðingi og léttir töluvert álagi á okkur, en ekki síst andlegu, því það fer alltaf orka í að skrifa orð fyrir orð á tölvu, að umbreyta hugsun yfir í að skrifa góða læknanótu.“

Ítarlega umfjöllun um málið má lesa á vef HSN með því að smella hér.

COMMENTS