Hugmynd úr Popparasögum verður að veruleika á Græna hattinum

Það sem byrjaði sem létt uppástunga í viðtali við Botnleðju í hlaðvarpinu Popparasögum, sem er unnið og framleitt í Eyjafjarðarsveit, er nú orðið að veruleika.
Í hlaðvarpinu var rætt við þá Harald Frey Gíslason og Heiðar Örn Kristjánsson úr Botnleðju um framtíð sveitarinnar. Þegar þeir voru spurðir beint um það hvort þeir myndu vilja spila á Akureyri í náinni framtíð sögðu strákarnir að það kæmi vel til greina og það væri langt síðan þeir höfðu spilað þar. Svo langt síðan að þeir voru ekki vissir hvenær.
Þá benti þáttarstjórnandinn þeim á að hann gæti gefið þeim gjafabréf í Skógarböðin í Eyjafirði, með því skilyrði að þeir væru með tónleika á Græna hattinum í leiðinni. Viðbrögðin voru í anda Botnleðju og ekkert var gefið eftir. „Það þýðir ekki að gera neitt með skilyrði hjá mér. Engar málamiðlanir þá,“ svaraði Haraldur Freyr.
Hugmyndinni var þó ekki alfarið hafnað. Þegar í ljós kom að Botnleðja hafði mögulega ekki spilað á Græna hattinum undir eigin nafni var þetta tekið til skoðunar. Skömmu síðar kom auglýsingin: Botnleðja á Græna hattinum laugardaginn 5. september.
Fyrir þá sem vilja hita upp fyrir tónleikana er hægt að hlusta á viðtalið við þá félaga. Þar fara þeir yfir sögu Botnleðju, Eurovison-ævintýrið, tónleikaferðina og vinskapinn við Blur, þeirra vinsælustu lög og margt fleira.
Hlekkur:
https://open.spotify.com/episode/603FwzJv8k7Jh1BTbg5CHK?si=3ec596a7e85a4498
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










