MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Hlaðvörp

Hvað er DriftEA?

Eftir Ingólfur Stefánsson·
759420997_122240260016321801_8147907318230908303_n
kaffid.is

DriftEA á Akureyri hefur hafið framleiðslu á hlaðvarpsþáttunum Driftkastið. Í fyrsta þætti DriftKastsins fara Sesselja Barðdal Reynisdóttir framkvæmdastýra Driftar, Kristján Þór Júlíusson stjórnarformaður Driftar og Kolfinna María Níelsdóttir leiðtogi markaðs- og viðburðamála yfir upphaf Driftar EA og ferðalagið hingað til.

DriftKastið er hlaðvarp frá Drift EA þar hlustendur eru teknir með inn í spennandi heim nýsköpunar, frumkvöðlastarfsemi og skapandi atvinnulífs á Norðurlandi.

Í vetur verður farið á bak við tjöldin og talað við fólk sem er að byggja fyrirtæki, þróa hugmyndir, skapa störf og hafa áhrif á samfélagið. Ferðalagið frá fyrstu hugmynd að framkvæmd, áskoranirnar sem verða á vegi fólks, sigrana sem fást með þrautseigju og lærdóminn sem verður til á leiðinni eru á meðal umfjöllunarefna.

Hlustaðu á fyrsta þáttinn í spilaranum hér að neðan:

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026